Hitamet fyrir maímánuð var slegið í Bretlandi í gær þegar hitinn mældist 33,5 gráður á Heathrow flugvelli, en búist er við að hiti muni mælast enn hærri í dag og á morgun og fara upp í allt að 35 gráður.
Hitabylgja hefur geisað í Evrópu síðustu daga og er því spáð að hiti muni fara upp í 40 gráður á Spáni í lok vikunnar.
Í yfir tuttugu bæjum og borgum í Frakklandi hefur mælst hæsti hiti í maímánuði frá upphafi mælinga og hafa veðurfræðingar sagt að búast megi við því að hundruð fleiri hitamet falli á næstu dögum, samkvæmt frétt The Guardian.
Gerist æ oftar og ákafar
Hitastigið núna í lok maímánaðar komi til með að fara 12 eða 13 gráður yfir meðalhita á þessum árstíma. Franskir veðurfræðingar hafa talað um „ótímabært, óvenjulegt og langvarandi“ hitakast sem búist er við að standi í nokkra daga í viðbót.
Þessar óvenju háu hitatölur eru sagðar stafa af svokallaðri hitahvelfingu, þar sem heitt loft frá Marokkó situr fast undir háþrýstisvæði. Mega Evrópubúar gera ráð fyrir að slíkt gerist æ oftar og ákafar en áður.
Líkön hafi þegar áætlað að vegna áhrifa loftslagsbreytinga séu hitabylgjur í júní nú um það bil tíu sinnum líklegri í Evrópu en þær voru fyrir iðnbyltingu og sama þróun er farin að sjást fyrir maí.