„Hitabylgjunum fjölgar og þær verða öflugri, það er að segja heitari. Þær vara lengur og þær eru fyrr á ferð á árinu,“ segir Kristin Aunan, rannsóknastjóri Cicero-loftslagsrannsóknarmiðstöðvarinnar í Noregi, í samtali við ríkisútvarpið þarlenda NRK þar sem hún hvetur Norðmenn til að velta heilsu sinni fyrir sér áður en sumarfrí á suðlægar slóðir eru skipulögð.
Fáir hafa farið varhluta af fréttum síðustu daga þar sem sagt hefur verið frá mannskæðri hitabylgju í Evrópu. Hafa drukknanir verið þar algengasta dánarorsökin en skuldinni engu að síður skellt á hitann sem dregur fólk að sjó og vötnum til að kæla sig.
Sérstaklega athygli hafa fregnir af methita fyrir maímánuð í Bretlandi vakið þar sem met frá árinu 1944 var slegið á mánudaginn en nýja metið varð fráleitt jafn langlíft og það fyrra þar sem það féll þegar á þriðjudag.
55.000 pantað til Mallorca hjá Ving
Norðmenn láta hitabylgjuna ekki setja strik í reikninginn og hafa þegar 55.000 manns pantað sér ferðir til spænsku eyjarinnar Mallorca með ferðaskrifstofunni Ving. Í ár er þó nokkuð um að Norðurlandabúar velji örlítið svalari áfangastaði en Spán, Grikkland og grísku eyjarnar og samkvæmt aðstandendum flugbókunarvélarinnar Amadeus hafa svissnesku Alparnir nú notið aukinna vinsæla og eins Albanía.
Aunan bendir á að aldraðir séu í mestri hættu á að beinlínis deyja af völdum hita en tekur fram að ungbörn séu annar áhættuhópur og óléttar konur. „Eins fólk sem er á lyfjum, til dæmis blóðþrýstingslyfjum,“ segir rannsóknastjórinn hjá CICERO.
Hjá norska tryggingafélaginu Storebrand hefur það einnig vakið athygli að æ fleiri biðja nú um ráðgjöf áður en þeir leggja í ferðalög.
„Við erum nú komin æ meira í það hlutverk að vera ferðaráðgjafar viðskiptavina okkar,“ segir Hanne Iversen Rye sem starfar við forvarnir hjá fyrirtækinu og bætir því við að þar sé gjarnan á ferð fólk sem hafi þegar keypt sumarleyfisferð en fyllist svo kvíða.
Tryggingarnar bæta ekki afpantaða ferð
Hún segir að í flestum löndum standi fólki læknisaðstoð til boða verði það fyrir skakkaföllum vegna mikils hita. „En ef þú ætlar að afpanta ferð vegna hitabylgju geta tryggingafélögin varla hjálpað þér,“ segir hún.
Bendir Rye eldra fólki og þeim sem stríða við vanheilsu á að ráðfæra sig við lækni áður en ferðir á heitustu staðina eru pantaðar. „Svo gilda bara þessi sígildu ráð, mundu eftir sólarvörninni og leitaðu í skugga yfir hádaginn. Svo þarf að gæta að því að kæla sig og drekka nóg vatn og síðast en ekki síst að taka því rólega í hitanum,“ segir Hanne Iversen Rye hjá Storebrand að lokum.