Ef kemur til styrjaldarátaka telur danski herinn og varnarmálaráðuneytið nauðsynlegt að hafa minnst 180 þúsund varaliðsmenn til taks. Þeim væri meðal annars ætlað að berjast við hlið hermanna Atlantshafsbandalagsins.
Þetta er mat og vilji Michael Hyldgaard, æðsta yfirmanns danska hersins, samkvæmt upplýsingum í leyniskjölum frá varnarmálaráðuneytinu sem DR kveðst hafa undir höndum. Þar er dregin upp mynd af uppbyggingu og þjálfun heraflans sem kostar milljarða króna.
Varnarmálaráðuneytið lítur svo á að brýnt sé að geta kallað til vel þjálfað varalið svo bregðast megi við hættu- og stríðsástandi, segir í skjölunum. Varaliðsmennirnir mega vera allt að 65 ára gamlir og verða að hafa lokið nýju ellefu mánaða námskeiði í herþjálfun.
Herinn vill geta kallað reynda hermenn út einu sinni í tíu til fimmtán daga til endurþjálfunar á fyrstu tíu árunum eftir að herþjónustu þeirra lýkur. Sú hugmyndafræði er í anda kalda stríðsins að mati Iben Bjørnsson, dósents við herháskólann í Stokkhólmi.
Staða heimsmála sé reyndar tekin að minna á þann tíma. Hugmynd Hyldgaards er að kveða þrettán þúsund manns til herþjónustu á hverju ári, sem er meira einn af hverjum fimm ríkisborgurum á herskyldualdri.