Sex stærstu efnahagsveldi Evrópusambandsins (ESB) hétu því í dag að leggja ágreining til hliðar og flýta fyrir samþættingu fjármálamarkaða sinna á sama tíma og sambandið reynir að halda í í kapphlaupinu við Bandaríkin og Kína.
ESB hefur um árabil reynt að sameina sundurleita fjármagnsmarkaði sína í því skyni að bjóða borgurum þess betri fjárfestingakosti og losa um meira fjármagn fyrir fyrirtæki á svæðinu.
Hugmyndin lá lengi í dvala vegna þræta milli aðildarríkja en hefur fengið aukinn slagkraft eftir því sem kínverskur iðnaður sækir fram og samskiptin við Bandaríkin súrna undir stjórn Donalds Trump Bandaríkjaforseta.
Tíminn er núna
Lars Klingbeil, fjármálaráðherra Þýskalands, sagði fyrir viðræður við fimm starfsbræður sína úr ESB í Berlín að það kæmu „tímar þegar við þurfum meiri Evrópu – og nú er einmitt slíkur tími“.
Viðræðurnar myndu snúast um „hvernig við getum dýpkað fjármagnsmarkaði í Evrópu, hvernig við getum rutt úr vegi hindrunum fyrir viðskiptum yfir landamæri, gert fjárfestum auðveldara að fjárfesta í Evrópu og gert evrópskum fyrirtækjum auðveldara að afla fjármagns,“ sagði hann.
Þýskaland, stærsta hagkerfi Evrópu, „verður að vera reiðubúið að gera málamiðlanir,“ sagði hann enn fremur.
„Til þess verðum við að horfa út fyrir okkar þjóðlega sjóndeildarhring ef við viljum sterka Evrópu.“
Gert fyrri evrópska borgara
Roland Lescure, fjármálaráðherra Frakklands, bætti við að meira þyrfti að gera til að tryggja að evrópskt fjármagn hætti að flæða út um allt og héldist innan Evrópu til að fjármagna evrópskar lausnir á þeim alþjóðlegu vandamálum sem Evrópa stæði frammi fyrir.
„Við gerum þetta fyrir borgara okkar. Við viljum að Evrópubúar séu stoltir af því að fjárfesta í evrópskum fyrirtækjum,“ sagði hann.
Klingbeil og Lescure fengu til liðs við sig fjármálaráðherra Ítalíu, Hollands, Póllands og Spánar – hóps landa sem þekktur er sem „E6“.
