Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri sölu, rekstrar og þjónustu hjá Bláa lóninu, hefur látið af þeim störfum hjá fyrirtækinu.
Héðan í frá mun hún sinna sérverkefnum á skrifstofu forstjóra fyrirtækisins, að því er hún tjáir mbl.is.
Helga var gjarnan kölluð til viðtals þegar áhrif vegna eldsumbrota á Reykjanesskaga á reksturinn stóðu sem hæst.
Svið Helgu lagt niður
Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa lónsins, segir Helgu nú verða sér til halds og trausts í ýmsum verkefnum sínum sem forstjóri.
Tilkynnt var um skipulagsbreytingar hjá lóninu í gær og voru 29 stöðugildi lögð niður af þeim sökum. Ekki verður ráðinn inn nýr starfskraftur í gömlu stöðu Helgu.
„Við færðum einnig til 55 starfsmenn, við vorum í raun að búa til ný svið sem ekki voru til. Sviðið sem Helga var í forsvari fyrir er ekki til lengur. Í höfuðstöðvunum erum við nú með sex svið,“ segir Sigríður í samtali við mbl.is.
Vegna þessara skipulagsbreytinga var alls 26 starfsmönnum sagt upp í höfuðstöðvunum að sögn Sigríðar. Markmið breytinganna sé að skerpa á hlutverki móðurfélagsins í þjónustu við dótturfélög sín
