Heitavatnslaust verður í dag á Suðurnesjum vegna framkvæmda HS Veitna við stofnæð hitaveitu við Njarðarbraut og framkvæmda HS Orku við dælustöð á Fitjum. Tilkynnt var um framkvæmdirnar fyrir tæpri viku.
Lokun fyrir heita vatnið hefur áhrif í Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ, Vogum og á Keflavíkurflugvelli og eru tímasetningar og tímalengd lokunar mismunandi eftir svæðum.
Lokað var fyrir heita vatnið í Ytri-Njarðvík, Keflavík og Suðurnesjabæ klukkan fjögur í nótt og verður það komið aftur á eftir allt að sólarhring. Heita vatnið verður tekið af Innri-Njarðvík, Ásbrú, Keflavíkurflugvelli og Vogum klukkan átta og verður komið aftur á fimm til átta klukkustundum síðar.
Eitthvað heitt vatn gæti verið áfram inni á kerfinu vegna vatns sem þegar er í tönkum, segir í tilkynningu á vef HS veitna.