Branson hefur verið á Íslandi upp á síðkastið og birti myndaröð á Instagram í gær af vinahittingi með Höllu Tómasdóttur forseta.
„Æðislegt að hitta vinkonuna mína, fyrrverandi samstarfsfélaga og forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur,“ skrifaði Branson í færslunni.
„Fyrir nokkrum árum þegar Halla var forstjóri B Team þá hringdi hún í mig og spurði hvort hún mætti fara í mánaðarleyfi. Ég sagði: „Auðvitað, hvað ætlarðu að gera?“ Hún sagði mér að hún ætlaði í forsetaframboð þrátt fyrir að vera bara með tvö prósent í skoðanakönnunum. Ég sagði í gríni: „Gangi þér vel og það hljómar eins og ég sjái þig eftir mánuð!“.“
„Það sem ég hafði rangt fyrir mér. Halla endaði á að ná kjöri og hefur vaxið í embætti eftir því sem á hefur liðið. Við misstum einn besta forstjóra sem við höfum átt en heimurinn er betur staddur með Höllu sem forseta,“ sagði hann jafnframt.
Halla var árið 2018 ráðin forstjóri sjálfseignarstofnunarinnar The B Team, vettvangs áhrifafólks, stjórnmála- og viðskiptamanna til að vinna að sjálfbærni í loftslagsmálum, sem Branson stofnaði ásamt hópi fólks. Hún hætti í því starfi þegar hún náði kjöri í embætti forseta Íslands árið 2024.