Heimildanotkun gervigreindar ábótavant í 43% tilfella

Heimildanotkun gervigreindar ábótavant í 43% tilfella

Heimildanotkun gervigreindar ábótavant í 43% tilfella

Fjölmargar spurningar hafa vaknað um ýmislegt sem tengist Evrópusambandinu og mögulegri aðild Íslands að undanförnu. Borið hefur á því að fjöldi fólks notar gervigreind, ólík spjallmenni, við upplýsingaöflun. Rætt er um áhrif þessara breytinga í fréttaskýringaþættinum Þetta helst.

„Það getur verið gott því aðgengi að upplýsingum er mögulega greiðara,“ segir Hafsteinn Einarsson, dósent í tölvunarfræði og sérfræðingur í gervigreind, þegar hann er spurður að því hvort það sé góð þróun að fleiri noti spjallmenni við upplýsingaöflun í aðdraganda kosninga. Áður hafi fólk leitað að upplýsingum í leitarvél, skoðað heimildir og þannig vegið og metið efni vefsíðna.

Nú notar fólk gervigreind í upplýsingaleit. „Þetta getur verið mjög gagnlegt vegna þess að þetta sparar okkur mikinn tíma. Hún finnur fljótlega svarið fyrir okkur en þegar við erum að tala um eitthvað eins og þessar mögulegu aðildarviðræður þá er þetta kannski talsvert flóknara mál. Það er ekkert endilega alltaf eitthvað eitt rétt svar við hverri spurningu,“ segir Hafsteinn.

„Síðan geta svörin verið óáreiðanleg. Mögulega er búið að stilla upp einhverju svari við spurningu á einhverri heimasíðu og það er engin heimild sem styður þær staðhæfingar sem eru settar fram þar. Þá er svona spurning: er það óáreiðanleg heimild? Það er náttúrulega kannski bara mat hvers og eins hvort þeir treysta heimildinni eða ekki.“

Gerðu fjölmargar athugasemdir við heimildanotkun

Hafsteinn segir að nýlega hafi verið kannað í Háskóla Íslands hvernig gervigreind gæti nýst á Evrópuvefnum, vefsíðu Háskólans sem á að veita hlutlægar, málefnalegar og trúverðugar upplýsingar um Evrópusambandið og mögulega aðild Íslands. Tvennt hafi verið skoðað.

„Ein nálgun er svona þessi ábyrga nálgun eins og margir virðast beita þar sem við ákveðum fyrir fram hvaða heimildum við viljum treysta – þannig að við ætlum þá að treysta þeim heimildum sem eru til staðar á Evrópuvefnum og leyfa gervigreindinni einungis að vísa í þær heimildir. Hún geti flett upp í þeim heimildum sem eru til staðar og svarað spurningum út frá því. Vandamálið við þá nálgun er að oft koma kannski einhverjar spurningar sem þær heimildir geta ekki svarað. Það er að gerast í svona helmingi tilvika sem við erum að skoða.“

Þá var einnig kannað hver áhrif þess yrðu ef gervigreindarlíkaninu væri takmarkalaust leyft að leita heimilda á netinu. „Við vorum með fimm sérfræðinga sem fóru að lesa þá yfir svör frá gervigreindarlíkaninu. Þetta voru eitthvað um 277 spurningar sem við bjuggum til og þegar gervigreindin fékk svona spurningu fór hún að fletta upp á netinu, skrifaði svar og heimildalista út frá þeim heimildum sem hún hafði notað,“ segir Hafsteinn.

Sérfræðingar lögðu í kjölfarið mat á áreiðanleika heimilda. „Í 43 prósent tilfella – þegar við vorum að skoða greinar þar sem búið var að styðjast við uppflettingu á netinu – þá var allavega ein heimild flögguð. Ástæðurnar fyrir því voru misjafnar,“ segir hann, og bendir til að mynda á rugling á frumheimild og tilvísunum, tilvísanir í skoðanagreinar og bloggsíður og vefsíður sem virtust skrifaðar af gervigreind.

Telur umræðuna að mestu á rökum reista

Fólk notar því bæði spjallmennin beint í leit að svörum um sambandið og mögulega aðild Íslands; en líka vefsíður sem þar sem gervigreind er notuð. Vefsíðan jaedanei.is hefur til að mynda vakið athygli en hún á – með notkun gervigreindar – að veita skýr svör, sem byggjast á alvöru heimildum, ekki tilfinningum, eins og segir á forsíðu.

Í þessu samhengi má einnig nefna ESB vaktina, esbvaktin.is, sem er gagnadrifið verkefni þar sem fylgst er með umræðu um þjóðaratkvæðagreiðsluna. Fullyrðingar úr opinberri umræðu eru skráðar í gagnagrunn. Spjallmennið Claude skannar fullyrðingarnar og ber þær saman við staðreyndagögn; lagaákvæði, efnahagstölur, alþjóðleg fordæmi og opinbera afstöðu samtaka. Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson, tölfræðingur, hefur umsjón með verkefninu.

„Ég er að búa til gagnasöfn, búa til söfn af réttum upplýsingum og gervigreindin sækir í það. Þetta er meira eins og einhvers konar forritunarkóði. Þetta er svona ný tegund af forritun. Gervigreindin er ekki að segja út frá eigin minni eða út frá einhverri stærðfræði sem hún er að gera bak við tjöldin, hvort eitthvað sé rétt eða rangt, heldur að bera saman við texta og heimildir,“ segir hann.

Með notkun gervigreindar er Brynjólfi kleift að vega og meta fjölda fullyrðinga en líka fá einhverja heildarmynd af umræðunni. „Manni finnst það jákvætt að svona rúmlega 90 prósent af öllum fullyrðingum eru staðfestar eða að hluta. Í umræðunni er ekkert endilega verið að ljúga eða eitthvað. Það er verið að segja hluti sem eru réttir, allavega tæknilega séð.“

„Það sem mér hefur hins vegar fundist vanta, sem maður sér í gögnunum, er að það er eiginlega bara verið að ræða örfá málefni. Ég sé hérna að 40 prósent af öllum staðreyndum eru um fullveldi og svona löggjafa atriði. Svo hefur kannski að hluta til verið talað um fiskveiðistjórnun, 15 prósent,“ segir hann.

Gagnlegt tól en þurfum að vera gagnrýnin

Gervigreind getur þannig vitaskuld verið stoðsending fyrir upplýst samfélag þó að fara þurfi varlega í að treysta henni alfarið. „Við eigum auðvitað að líta á þetta sem gagnlegt tól, sem þetta sannarlega er, en við þurfum að vera gagnrýnin á þessar upplýsingar eins og upplýsingar í öllu umhverfi okkar,“ segir Skúli Bragi Geirdal, sérfræðingur í miðlalæsi.

„Ég held að það sé ofboðslega gott að nýta þetta til þess að reyna að greiða aðeins úr stórum og flóknum málum. Hjálpa okkur að ná einhvern veginn utan um það. Við eigum ekki að treysta á einhvern einn stað þegar við erum að leita okkur upplýsinga. Það að nota gervigreindina ásamt því að leita af efni fjölmiðla, leita í alls konar aðrar staðreyndavaktir, inn á efni Vísindavefsins sem dæmi, inn á aðrar traustar síður, þá erum við kannski farin að ná utan um það. Þetta er í raun bara mjög öflug og góð viðbót í okkar umhverfi en kemur sannarlega ekki í staðinn fyrir annað manngert efni,“ segir hann.

Nánar er rætt um þessi mál í Þetta helst. Finna má þáttinn í spilara hér að ofan.

#gervigreindar #heimildanotkun #tilfella #ábótavant


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-06-10-heimildanotkun-gervigreindar-abotavant-i-43-tilfella-477622

📰 Aðrar fréttir

Íslendingar lýsa því hversu mikið þeir ná að leggja til hliðar í hverjum mánuði – „Bara góð ef ég kem út á núlli þessa dagana“
📅 24.10.2026 👁️ 1
Íslendingar lýsa því hversu mikið þeir ná að leggja til hliðar í hverjum mánuði – „Bara góð ef ég kem út á núlli þessa dagana“
Í dýrtíð eins og nú er er ekki sjálfsagt að geta lagt fyrir í hverjum mánuði. Annað hvort inn á sparireikning eða borgað inn á lán. Í umræðum á samfél...
Kennari skildi bekk sex ára barna einan eftir og fór á fyllerí – Læsti sig inni á klósettinu
📅 24.10.2026 👁️ 1
Kennari skildi bekk sex ára barna einan eftir og fór á fyllerí – Læsti sig inni á klósettinu
Katharine Viviano, 50 ára grunnskólakennari í Pennsylvaníufylki í Bandaríkjunum, hefur verið ákærð fyrir ölvun á almannafæri eftir undarlegt atvik í h...
Segir viðmót starfsmanns hafa breyst þegar hún sagðist vera gyðingur
📅 24.10.2026 👁️ 1
Segir viðmót starfsmanns hafa breyst þegar hún sagðist vera gyðingur
Ísraelsk-bandaríski rithöfundurinn Shoshanna Keats Jaskoll segir viðmót starfsmanns í öryggisleit á flugvellinum hafa breyst þegar hún sagðist vera gy...
Segir skorta rök fyrir því að lögregluembættin verði þrjú
📅 24.10.2026 👁️ 1
Segir skorta rök fyrir því að lögregluembættin verði þrjú
Yfirlögregluþjónar og starfsmenn lögreglu á Norðurlandi vestra og Vestfjörðum lýsa áhyggjum af fyrirhugaðri fækkun lögregluembætta úr níu í þrjú. Alls...
Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 1
Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni - Vísir
Keppnin var á vegum Krónunnar og var metþátttaka í ár. Edda sem bar sigur úr býtum var í öðru sæti fyrir tveimur árum og hefur því ákveðna reynslu á b...
Hefur ekki átt í sambandi við föður sinn til að vernda börnin
📅 24.10.2026 👁️ 1
Hefur ekki átt í sambandi við föður sinn til að vernda börnin
Meghan Markle hefur ekki leyft föður sínum að eiga í sambandi við börnin sín vegna ásakana á hendur honum. Fréttir bárust af því í gær að myndefni sem...
Sjö þúsund krónur séu ekki nóg - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 2
Sjö þúsund krónur séu ekki nóg - Vísir
„Innanlandsflugið er lífæð landsbyggðar og tryggir aðgengi að nauðsynlegri þjónustu við fólk. Flugið er öryggismál og jafnréttismál til að jafna aðstö...
Þrír menn segjast hafa selt Lindsey Graham vændi – Einn var 17 ára
📅 24.10.2026 👁️ 2
Þrír menn segjast hafa selt Lindsey Graham vændi – Einn var 17 ára
Í myndbandi sem birt var af hópnum The Young Turks segir að þingmaðurinn Lindsey Graham hafi keypt vændi af karlmönnum. Graham lést skyndilega í sumar...
Yfir hundrað hand­teknir í mót­mælunum - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 2
Yfir hundrað hand­teknir í mót­mælunum - Vísir
Mótmælaaldan sem hefur farið vaxandi í Frakklandi á síðustu vikum náði hámarki um síðustu helgi. Fjöldi fólks var handtekinn og voru gerðar miklar ske...
Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 2
Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins - Vísir
Þann 16. apríl síðastliðinn spurði Njáll Trausti Friðbersson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í fjárlaganefnd, Eyjólf Ármannsson samgön...
Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Refhverf sléttubönd
📅 24.10.2026 👁️ 3
Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Refhverf sléttubönd
Talsvert er rætt um gervigreind þessa dagana. Margir þeirra sem vinna með höfðinu óttast að þeir verði úreltir og ónothæfir áður en langt um líður. Vi...
Þetta er undar­legt…: QWER­TY-stafa­ruglið á símum og lykla­borðum - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 3
Þetta er undar­legt…: QWER­TY-stafa­ruglið á símum og lykla­borðum - Vísir
Frekar undarlegt er það ekki? Vinsælasta skýringin er sú að í upphafi ritvélarinnar festust takkarnir ef pikkað var of hratt. Þannig að uppfinningamað...
Salvör krefur stjórnvöld um svör – „Að baki þessu máli er barn sem lést og fjölskylda sem hefur orðið fyrir óbætanlegum missi“
📅 24.10.2026 👁️ 3
Salvör krefur stjórnvöld um svör – „Að baki þessu máli er barn sem lést og fjölskylda sem hefur orðið fyrir óbætanlegum missi“
Salvör Nordal, umboðsmaður barna, segir að stjórnvöld verði að gera grein fyrir úrbótum varðandi neyðarvistun barna. Tvö ár eru síðan drengur í neyðar...
Smáhestar flúðu úr verslunar­mið­stöð - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 3
Smáhestar flúðu úr verslunar­mið­stöð - Vísir
Dýrin komust raunar ekki langt. Lögregla náði að handsama hestana þegar þeir stoppuðu til að bíta gras um kílómetra frá verslunarmiðstöðinni og voru þ...
Geta notað drónana til fulls á ný - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 3
Geta notað drónana til fulls á ný - Vísir
Aðfaranótt 14. október tóku úkraínskir hermenn eftir því að takmarkanir virtust hafa verið settar á notkun þeirra á Starshield-kerfinu sem er sérstaku...
Sigmundur Ernir skrifar: Það krefst úthalds til að auðga samfélagið
📅 24.10.2026 👁️ 4
Sigmundur Ernir skrifar: Það krefst úthalds til að auðga samfélagið
Mynd Mannréttindabarátta hefur mestu varðað um bætta ásýnd samfé
Lilja Rafney ekki ánægð með breytingu flokksbróður síns – „Þetta er ekki boðlegt“
📅 24.10.2026 👁️ 3
Lilja Rafney ekki ánægð með breytingu flokksbróður síns – „Þetta er ekki boðlegt“
Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingkona Flokks fólksins, er ekki ánægð með fyrirhugaðar breytingar á hinni svokölluðu Loftbrú. Flokksbróðir hennar Eyjólfu...
Leggjast gegn sam­einingu lögregluembætta - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 2
Leggjast gegn sam­einingu lögregluembætta - Vísir
Umsögnin beinist að frumvarpsdrögum Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra um skipulagsbreytingar hjá lögreglu. Frumvarpið leggur til að...
Paramedics save holidaymakers life after he had a heart attack on a beach in Lanzarote
📅 24.10.2026 👁️ 3
Paramedics save holidaymakers life after he had a heart attack on a beach in Lanzarote
An elderly man was resuscitated and taken to hospital after suffering a cardiac arrest at La Garita beach in Arrieta, located in the north of Lanzarot...
Katrín í Lýsi fjárfestir í einkareknum spítala
📅 24.10.2026 👁️ 2
Katrín í Lýsi fjárfestir í einkareknum spítala
Katrín í Lýsi fjárfestir í einkareknum spítala Litli spít­al­inn verður opn­aður í hús­næði í eigu stofn­anda Samherja. Nýja einka­rekna sjúkra­húsið ...
Hyggjast mótmæla breytingum á Loftbrú: „Við ætlum ekki að sætta okkur við þetta“
📅 24.10.2026 👁️ 2
Hyggjast mótmæla breytingum á Loftbrú: „Við ætlum ekki að sætta okkur við þetta“
Innviðaráðherra, tilkynnti í gær breytingar á fyrirkomulagi Loftbrúar sem taka gildi frá og með áramótum. Formaður Sambands sveitarfélaga á Austurland...
Investor Political Due Diligence in Europe: Which firms should you speak to?
📅 24.10.2026 👁️ 2
Investor Political Due Diligence in Europe: Which firms should you speak to?
A European investment target may have strong financial results and still depend on relationships that do not appear in its accounts. Political connect...
Skrif­borð Megasar eins og hjá skurð­lækni - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
Skrif­borð Megasar eins og hjá skurð­lækni - Vísir
Í viðtalinu fer Tolli á kostum, hann fer yfir víðan völl og stiklar á stóru varðandi sinn litríka feril. Hann hætti öllum afskiptum af tónlist eftir a...
Pawel Bartoszek: Við erum ekki að innleiða bókun 35 fyrir Brussel – við erum að innleiða hana fyrir Íslendinga
📅 24.10.2026 👁️ 4
Pawel Bartoszek: Við erum ekki að innleiða bókun 35 fyrir Brussel – við erum að innleiða hana fyrir Íslendinga
Þegar við skrifuðum undir EES-samninginn skuldbundum við okkur til að lögfesta forgang innleiddra laga og regla sem leiddu af honum ef þörf væri á. Hæ...
Sigríður Hagalín með frumlega hugmynd fyrir borgarstjórn – „Byggingin er bæði falleg og praktísk“
📅 24.10.2026 👁️ 4
Sigríður Hagalín með frumlega hugmynd fyrir borgarstjórn – „Byggingin er bæði falleg og praktísk“
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, fréttakona og rithöfundur, leggur til að borgarstjórn Reykjavíkur sameini tvö mál sem henni eru hjartfólgin, það er bók...
Starfsmenn lögreglunnar á Norðurlandi vestra leggjast gegn sameiningu embætta
📅 24.10.2026 👁️ 4
Starfsmenn lögreglunnar á Norðurlandi vestra leggjast gegn sameiningu embætta
Starfsmenn Lögreglustjórans á Norðurlandi vestra hafa skilað inn umsögn um frumvarp til laga um breytingar á lögreglulögum. Þar leggjast þeir gegn þei...
Lýsa þungum áhyggjum af vanfjármögnun á sjúkraflutningum á Suðurnesjum
📅 24.10.2026 👁️ 4
Lýsa þungum áhyggjum af vanfjármögnun á sjúkraflutningum á Suðurnesjum
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar lýsir þungum áhyggjum af sjúkraflutningum á Suðurnesjum. Þetta kemur fram í sameiginlegri bókun bæjarstjórnarfulltrúa á fun...
„Ég er bara svo­lítið sár“ - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
„Ég er bara svo­lítið sár“ - Vísir
Loftbrúarverkefnið var sett á fót fyrir sex árum til þess að bæta aðgengi íbúa á landsbyggðinni að þjónustu á höfuðborgarsvæðinu. Hingað til hefur fól...
Hafi fengið bréf um á­sakanirnar en deildu því ekki með fleirum - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
Hafi fengið bréf um á­sakanirnar en deildu því ekki með fleirum - Vísir
Greint var frá því í gær að Thomas Markle eldri hefði verið sakaður um vörslu barnaníðsefnis af syni sínum, Thomas Markle yngri, sem er hálfbróðir Meg...
Minkarækt Dana mun heyra sögunni til - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
Minkarækt Dana mun heyra sögunni til - Vísir
Fyrri ríkisstjórn Mette Fredriksen forsætisráðherra Danmerkur greiddi atkvæði gegn reglugerð ESB árið 2025 og ákvað í kjölfarið að sækja um undanþágu ...
Voru loftslagsverkföll ungs fólks bara góðærishreyfing?
📅 24.10.2026 👁️ 4
Voru loftslagsverkföll ungs fólks bara góðærishreyfing?
„Ef aðrar hreyfingar eru öflugar þá hafa hinar hreyfingarnar lítið pláss og það heyrist lítið í þeim. Í samtímanum eru bara önnur málefni sem taka mik...
Hversu vel fylgdist þú með fréttum vikunnar? Taktu fréttakvissið - RÚV.is
📅 24.10.2026 👁️ 4
Hversu vel fylgdist þú með fréttum vikunnar? Taktu fréttakvissið - RÚV.is
Hér eru tíu spurningar úr fréttum vikunnar. Veistu hvað nýtt fangelsi á að heita, hvaða bíómynd á að setja á svið í Borgarleikhúsinu og hvaða land ban...
Vikulokin: Mótmæli í Evrópu, bókasöfn, menntamál og tíðindaleysi á þingi
📅 24.10.2026 👁️ 4
Vikulokin: Mótmæli í Evrópu, bókasöfn, menntamál og tíðindaleysi á þingi
Mótmælin í Evrópu, PHP-málið, hugmyndir um breytingar á rekstri bókasafna og Fjölskyldu- og húsdýragarðsins, menntamál og tíðindaleysi á þingi er meða...
Met Police confirms it received 2019 letter with "number of claims" about Meghan's father
📅 24.10.2026 👁️ 3
Met Police confirms it received 2019 letter with "number of claims" about Meghan's father
The Met said it passed information to the duchess but did not share it with other law enforcement agencies.
„Lands­byggðin brjáluð“ og draugar í Laugar­dal - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 3
„Lands­byggðin brjáluð“ og draugar í Laugar­dal - Vísir
Þá verður rætt við þingmann stjórnarminnihlutans sem segir landsbyggðina brjálaða vegna málsins. Eyjólfur Ármannsson samgönguráðherra hafi lofað samrá...
Séð og heyrt á flóknum mótmælum í Frakklandi
📅 24.10.2026 👁️ 4
Séð og heyrt á flóknum mótmælum í Frakklandi
Séð og heyrt á flóknum mótmælum í Frakklandi Við­bún­aður víða um Frakk­land í dag. Hvað knýr and­stöð­una áfram? Hvernig hefur hún breyst? Rætt við f...
700 mótmæli skipulögð í Frakklandi í dag
📅 24.10.2026 👁️ 3
700 mótmæli skipulögð í Frakklandi í dag
Fjölmenn mótmæli eru fyrirhuguð í að minnsta kosti átta borgum á Ítalíu, á Spáni, í Portúgal, Albaníu og Austurríki.Yfirvöld í Frakklandi hafa hert ör...
Kim fór til Kína - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 3
Kim fór til Kína - Vísir
Kim fór um borð í lestina í Pjongjang, höfuðborg Norður-Kóreu, sem fór yfir nýju brúna sem liggur yfir Yalu-fljótið og endaði í kínversku borginni Dan...
Íslenska Trump-hatursæðið
📅 24.10.2026 👁️ 3
Íslenska Trump-hatursæðið
Íris Erlingsdóttir skrifar: Sérkennileg árátta hefur gripið um sig í íslenskri þjóðfélagsumræðu – að svara pólitískum skoðunum með skítkasti í stað ra...
Between quick wins and big dreams lies Burnham's biggest test, starting with the Budget
📅 24.10.2026 👁️ 4
Between quick wins and big dreams lies Burnham's biggest test, starting with the Budget
The prime minister might be dreaming of gold medals in 2040, but he must first navigate the difficult years in between, writes Laura Kuenssberg.
Orðið á götunni: Sleifarlag Sjálfstæðismanna í sveitarstjórnum – Seltjarnarnes á leið í gjörgæslu, Þór settur af? Bullandi tap í Hafnarfirði
📅 24.10.2026 👁️ 3
Orðið á götunni: Sleifarlag Sjálfstæðismanna í sveitarstjórnum – Seltjarnarnes á leið í gjörgæslu, Þór settur af? Bullandi tap í Hafnarfirði
Hrikaleg staða fjármála Seltjarnarnesbæjar er enn á ný komin á dagskrá eftir að sex mánaða uppgjör var birt nýlega þar sem halli á A-hluta bæjarins va...
Northern Olympics plan to get £7m in John Healey's first Budget
📅 24.10.2026 👁️ 4
Northern Olympics plan to get £7m in John Healey's first Budget
The full feasibility study will look in detail at how hosting the Games in northern England could work.
Explore Gran Canaria’s British heritage on a new free guided walk
📅 24.10.2026 👁️ 4
Explore Gran Canaria’s British heritage on a new free guided walk
Residents and holidaymakers can discover a different side of Las Palmas next week, with a bilingual guided walk exploring the city’s British connectio...
300 dumped mattresses cleared from Costa Calma streets
📅 24.10.2026 👁️ 4
300 dumped mattresses cleared from Costa Calma streets
Clean-up crews have removed 300 mattresses and 22 tonnes of bulky waste from Costa Calma this month, prompting an appeal for residents and businesses ...
Gianni Infantino: Fifa president says he is backed by 'vast majority' in world football
📅 24.10.2026 👁️ 4
Gianni Infantino: Fifa president says he is backed by 'vast majority' in world football
Fifa president Gianni Infantino laughs off questions about whether he considered resigning over the World Cup sell-off debacle.
Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað - Vísir
Um sjötíu þúsund lögreglumenn verða við störf í Frakklandi á þar sem yfirvöld reyna að stemma stigu við mótmælaöldu sem hefur farið vaxandi á síðustu ...
Augljós og marktæk aukning á sölu insúlínsprauta og nála
📅 24.10.2026 👁️ 4
Augljós og marktæk aukning á sölu insúlínsprauta og nála
Eftirspurn eftir insúlínsprautum og nálum heldur áfram áfram að aukast. Hægt er að nota sprauturnar til að sprauta peptíðum í líkamann, en borið hefur...
Ætlar að koma palestínskum yfirvöldum „á óvart“
📅 24.10.2026 👁️ 4
Ætlar að koma palestínskum yfirvöldum „á óvart“
Ætlar að koma palestínskum yfirvöldum „á óvart“ Eftir árás tveggja palest­ínskra manna á ísra­elska her­menn á Vest­ur­bakk­anum boðar Benjamín Net­an...
Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi
📅 24.10.2026 👁️ 3
Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi
Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi Mynd: Brynhildur Jensdóttir HMS hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Unu um innköllun á ...
Fimmtán ára drengur handtekinn eftir Facebook-færslur um borgarfulltrúa
📅 24.10.2026 👁️ 4
Fimmtán ára drengur handtekinn eftir Facebook-færslur um borgarfulltrúa
Lögreglan í West Midlands á Englandi handtók 15 ára dreng á heimili hans í Walsall 3. ágúst eftir að leiðtogi Íhaldsmanna í borgarstjórn Wolverhampton...