Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir það gríðarlega mikilvæga og skynsamlega fjárfestingu að vinna markvisst til lengri tíma að heilsueflingu eldra fólks.
Nýlega kom fram í fréttum að markviss heilsuefling geti seinkað vistun á hjúkrunarheimili. Hægt sé að spara 20 milljarða á ári ef vistun er seinkað hjá þúsund einstaklingum um eitt ár. Þjóðin eldist hratt og eftir tuttugu ár byrjar að fækka í hópi 20 til 40 ára á meðan eldri en 65 ára fjölgar hratt.
Íþrótta- og heilsufræðingur benti á að það vantaði pólitíska forgangsröðun og að forvarnir væru fjárfesting en ekki kostnaður. Hreyfingarleysi væri einn stærsti einstaki áhættuþáttur langvinnra sjúkdóma.
„Raunar má segja að það sé þessi tegund forvarna sem hefur einkennt hve hagkvæm og ódýr heilbrigðiskerfi til dæmis Norðurlandanna hafa verið,“ segir Daði Már.
„Fjárfestingar fyrir áratugina.“
Þessi málaflokkur krefjist meiri langtímahugsunar sem sé flókið þegar hallarekstur sé viðvarandi. Við þær aðstæður sé freistandi að skera niður forvarnarstarf en þá stækki vandamálið.
„Fyrst og fremst þurfum við þarna að horfa til lengri tíma í áætlanagerð hjá ríkinu. Við horfum að jafnaði til fimm ára. Kannski er það bara ekki nægilega langur tími, þetta eru fjárfestingar fyrir áratugina.“
Daði segir að vilji þessarar ríkisstjórnar sé að sinna þessu verkefni til langs tíma.
„Þarna eru bara mörg svona mál þar sem að forvarnir og fyrirbyggjandi aðgerðir eru ódýrari heldur en að vinna á vandanum eftir á,“ segir Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra.