Ríkislögmaður hefur ekki tekið ákvörðun um hvort áfrýja eigi dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í plastbarkamálinu svokallaða.
Þetta kemur fram í svari embættis ríkislögmanns við fyrirspurn mbl.is.
Dómur gegn íslenska ríkinu féll í síðustu viku en þar var íslenska ríkið dæmt bótaskylt gagnvart ekkju manns sem fékk græddan í sig plastbarka árið 2011.
Hann lést rúmum tveimur árum síðar.
Hafa fjórar vikur
Samkvæmt verklagi ákveður hlutaðeigandi ráðuneyti eða stofnun í samráði við ríkislögmann hvort áfrýja eigi dómum. Í þessu tilviki eru það Landspítalinn og heilbrigðisráðuneytið.
Áfrýjunarfrestur er fjórar vikur og hefur ríkislögmaður til 18. júní til að ákveða hvort málinu verði áfrýjað.