Bandaríska leikkonan Hayden Panettiere er látin 36 ára að aldri. Ekki liggur fyrir hvernig andlát hennar bar að en faðir hennar, Skip Panettiere, greindi frá andláti hennar. Hann sagði fjölskyldu hennar harmi slegna og bað hana um frið til að átta sig á þessum mikla missi.
Panettiere byrjaði að leika í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum á barnsaldri. Hún er hvað þekktust fyrir hlutverk sín í sjónvarpsþáttunum Heros og Nashville og í kvikmyndunum Remember the Titans, Scream 4 og Bring it on: All or Nothing.
Leikkonan var opinská um erfiðleika sína sem fylgt hafa frægðinni, fyrst sem barnastjarna og síðar sem fullorðin leikkona. Hún sagði einnig frá baráttu sinni við áfengi og fæðingarþunglyndi og í maí á þessu ári gaf hún út ævisöguna „This Is Me: A Reckoning.“
Panettiere lætur eftir sig eina dóttur, Kayu Klitschko. Faðir hennar er Vladimir Klitschko fyrrum hnefaleikakappi en hann og Panettiere voru par í nokkur ár.