Háværar deilur hafa risið vegna áforma kanadíska fjárfestisins Kevins O'Leary um að reisa það sem getur orðið stærsta gagnver heims í bandaríska ríkinu Utah. Slíkar deilur eru ekki óalgengar í Bandaríkjunum.
Samkvæmt teikningum mun Stratos-verið þarfnast níu gígavatta orku og þekja um 160 ferkílómetra svæði sem jafngildir nokkurn veginn samanlögðu flatarmáli Reykjavíkur, Kópavogs, Garðabæjar og Hafnarfjarðar.
Sveitarstjórn Box Elder-sýslu gaf snemma í maí leyfi til byggingar versins þrátt fyrir mótmæli þúsunda manna. Náttúruverndarsinnar segja ákvörðunina afar ábyrgðarlausa enda geti gagnaverið ógnað lífríki Stóra-Saltvatns sem farið hefur hnignandi árum saman.
O'Leary segir af og frá að vatnið verði í hættu af völdum versins, það þurfi aðeins fjórðung þess landsvæðis sem úthlutað var auk þess sem fjöldi starfa skapist með tilkomu þess. Greinendur vara jafnframt við að vatns- og orkunotkun Stratos-versins auki losun gróðurhúsalofttegunda um fimmtíu af hundraði í Utah.
Hitastig í dalnum umhverfis það gæti hækkað um allt að þrjár gráður að degi til og sex að næturlagi.
Andstæðingar versins hófu í síðustu viku undirskriftasöfnum svo efna megi til atkvæðagreiðslu meðal almennings um afturköllun framkvæmdaleyfa þess. Náist nægilega margar undirskriftir yrði gengið til atkvæðagreiðslu fyrir árslok.