Öryggismál voru rædd á stuttum fundi bandarísks og kúbansks hershöfðingja, þeirra Francis Donovan og Roberto Legra Sotolongo, í bandarísku herstöðinni við Guantanamo-flóa á Kúbu í gær.
Í tilkynningu suðurdeildar Bandaríkjahers segir að Donovan hafi rætt öryggi hermanna, viðbúnað þeirra og öryggismat fyrir stöðina.
Hún væri mikilvæg fyrir birgðaflutninga og viðbrögð hersins gegn þeim ógnum sem blasa við öryggi, stöðugleika og lýðræði í heimshlutanum. Herstöðin er alræmd fyrir grimmilegt athæfi gegn föngum grunuðum um aðild að hryðjuverkaárásunum á Bandaríkin 2001.
Samskipti ríkjanna hafa verið einstaklega stirð undanfarið eftir að Donald Trump fyrirskipaði hafnbann á olíuskip frá Venesúela ásamt því að hóta ítrekað innrás í Kúbu. Í síðustu viku bárust þau tíðindi að stjórnvöld á Kúbu fyrirhuguðu drónaárás á herstöðina kæmi til innrásar, sem leiðtogar landsins andæfðu harðlega.
Steininn tók loks úr þegar Bandaríkjamennákærðu Raul Castro, fyrrverandi forseta, fyrir morð, samsæri um að myrða Bandaríkjamenn og eyðileggingu flugvéla árið 1996. Greinendur telja Bandaríkin mögulega geta notað ákæruna sem átyllu til að fella ríkisstjórn Kúbu.
Þá skutu kúbanskar herþotur niður tvær óvopnaðar einkaflugvélar í alþjóðlegri lofthelgi, sem voru á vegum samtaka útlaga og aðgerðasinna með aðsetur í Miami á Flórída.
Fjórir fórust í árásinni, þrír bandarískir ríkisborgarar og Kúbverji með dvalarleyfi í Bandaríkjunum. Raul Castro fór fyrir byltingu kommúnista á Kúbu undir stjórn Fidels bróður síns og var forseti frá 2006 til 2018.