Harry Bretaprins og Meghan hertogynja af Sussex eru snúin aftur til Bretlands eftir sex ára búsetu vestanhafs. Samkvæmt BBC komu þau með einkaflugvél frá Kaliforníu í Bandaríkjunum til Bretlands.
Margt er enn á huldu varðandi vistaskipti hjónanna. Ekki er ljóst hvort þau séu flutt aftur fyrir fullt og allt en þau ætla að dvelja í Bretlandi í einhvern tíma en eiga áfram húsið sitt í Bandaríkjunum.
Ekkert heyrst frá Buckingham-höll
Ekkert hefur heyrst frá Buckingham-höll um heimkomu hjónanna enda ætla þau ekki að taka upp opinber störf fyrir krúnuna. Þá er talið að þau setjist að í Cotswold, sem er um miðja vegu milli Birmingham og Lundúna.
Börn þeirra, Archie prins, sjö ára, og Lillibet prinsessa, fimm ára, hafa verið skráð í breskan skóla. Líklegt þykir að Harry sinni störfum fyrir hin ýmsu góðgerðarfélög sem standa honum nærri.
Nokkuð er talað um að Meghan snúi sér aftur að leiklist og orðrómur er á kreiki um að hún fari með hlutverk í þriðju seríu af Netflix-seríunni Gentlemen.
Tökur á henni eiga að hefjast nú undir lok ágúst eða í byrjun september.