Olav Fykse Tveit, forseti biskuparáðs norsku þjóðkirkjunnar, Sunniva Gylver Óslóarbiskup og Marcus André Berg dómkantor stýra athöfninni.
Kista konungs verður fyrst flutt úr sal konungshallarinnar yfir í kapellu hallarinnar þar sem almenningur getur komið og vottað virðingu sína.
Þaðan heldur hún svo í dómkirkju Óslóar þar sem sjálf athöfnin fer fram. Eftir hana verður kistan flutt til kirkjunnar í Akurshúskastala þar sem fjölskyldan heldur minningarstund.
Samkvæmt umfjöllun Verdens gang hafa dönsku konungshjónin tilkynnt um komu sína og þjóðarleiðtogar víða að í heiminum munu líklega melda komu sína á næstu dögum.
Í Akurshúskastala verður Haraldur lagður til hinstu hvílu í konunglegu grafhvelfingunni þar sem faðir hans og móðir eru grafin.