Haraldur Noregskonungur verður jarðaður 9. september klukkan 13 að norskum tíma, 11 að íslenskum tíma. Þetta kemur fram í tilkynningu frá norsku hirðinni.
Kista konungs verður flutt úr sal konungshallarinnar yfir í kapellu hallarinnar þar sem almenningur getur komið og vottað virðingu sína.
Haraldur lést á föstudagsmorgun, 89 ára að aldri. Hákon sonur hans varð Hákon áttundi Noregskonungur við andlát hans og Ingiríður Alexandra krónprinsessa og ríkisarfi.
Minningarguðsþjónustur um Harald Noregskonung voru haldnar í nær öllum dómkirkjum landsins í morgun.