Þetta kemur fram í dagbók lögreglu en málavöxtum er ekki lýst frekar. Málið heyrir undir lögreglustöð 2 sem sinnir málum í Hafnarfirði og Garðabæ.
Þar segir einnig að óskað hafi verið eftir aðstoð vegna líkamsárásar miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu.
Auk þess mun leigubílstjóri hafa óskað aðstoðar vegna farþega sem hann var í vandræðum með. Það mál heyrir undir Stöð 4 sem sinnir verkefnum á höfuðborgarsvæðinu austan Elliðaáa.