Hallar ekki lengur á Höllu

Ánægja landsmanna með störf Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, hefur aukist umtalsvert samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Alls segjast 54 prósent svarenda ánægð með störf forsetans, sem er níu prósentustigum meira en í síðustu mælingu þegar 45 prósent lýstu ánægju sinni.
Maskína framkvæmir könnun um ánægju með störf forseta Íslands á hverjum ársfjórðungi. Á síðasta ári mældist ánægjan að meðaltali 52 prósent, en á fyrsta starfsári Höllu í embætti árið 2024 voru 48 prósent ánægð með störf hennar.
Samkvæmt niðurstöðunum eru tæp 24 prósent mjög ánægð með forsetann og tæp 10 prósent frekar ánægð. Á hinn bóginn segjast 5,5 prósent vera mjög óánægð og tæp 8 prósent frekar óánægð. Um þriðjungur svarenda kveðst hvorki ánægður né óánægður.
Töluverður munur mælist á afstöðu kynjanna. Um 64 prósent kvenna segjast ánægð með störf Höllu en tæp 8 prósent óánægð. Hjá körlum eru tæp 44 prósent ánægð, á meðan rúm 18 prósent lýsa óánægju.