Eyþór Rúnar Þórarinsson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja, segist ekki hafa vitað að til stæði að nota slökkviliðsfólk í auglýsingu Áfram Ísland. Vísir sagði fyrst frá.
Eyþór segir reglulegt flæði af myndatökum inn á slökkvistöðina.
„Við fengum ekki upplýsingar um hvað þetta væri nákvæmlega,“ segir Eyþór. Þær upplýsingar sem hann hafi fengið væru að sýna ætti mismunandi stéttir landsins.
Hann hafi veitt heimild fyrir tökunum út frá þessum upplýsingum.
Þeir slökkviliðsmenn sem tóku þátt í myndatökunni hafi þó vitað hvaða samtök væru mætt og hafi veitt persónulegt leyfi fyrir því að vera myndaðir.
Aðspurður hvort hann hafi fengið upplýsingar um tökurnar eftir að þær fóru fram segir hann svo ekki vera. „Ekki fyrr en ég fæ símtal frá Vísi,“ segir Eyþór sem segist ekki hafa hringt eftir upplýsingum um tökurnar eftir að þær fóru fram. Hann segir að slökkviliðið taki ekki afstöðu til málstaðarins.
Í auglýsingunni má vissulega sjá margar mismunandi stéttir landsins. Heiti auglýsingarinnar er Skrifum söguna sjálf. Setjum X við NEI 29. ágúst og birtist á YouTube-síðu samtakanna Áfram Ísland fyrir tveimur dögum.