Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn hafa myndað nýjan meirihluta í borginni. Á blaðamannafundi í Viðey þar sem þetta var tilkynnt kom fram að til stæði að Ari Edwald, oddviti Miðflokksins, yrði stjórnarformaður Orkuveitunnar. Kom þetta þó nokkrum á óvart, þar með talið Ara sjálfum sem kom af fjöllum og sagði í samtali við Vísi að hann hefði bara heyrt þetta á blaðamannafundinum eins og aðrir.
„Ég var bara að heyra þetta núna rétt áðan, að þetta væri eitthvað sem þau hyggja sem tillögu. Það er í sjálfu sér vinsamlegt af þeim að hugsa til mín með þeim hætti og ég mun hugleiða þetta en ég hef ekkert velt því fyrir mér hingað til, því þetta var bara að koma upp og ekki sett fram í samráði við mig.“
Ari telur nýjan meirihluta ákveðin svik við úrslit kosninganna þar sem sigur Miðflokksins hafi verið hlutfallslega stærri en sigur Sjálfstæðisflokks.
„Þannig að þess vegna segi ég það að mér finnst það vera ákveðin svik við úrslit kosninganna að Sjálfstæðisflokkurinn skoði það ekki vandlega að vinna með okkur.“