Hafa aflífað hundruð dýra – aðgerðastjórn fundar

Hafa aflífað hundruð dýra – aðgerðastjórn fundar

Hafa aflífað hundruð dýra – aðgerðastjórn fundar

Dalsbú er í Mosfellsdal skammt frá Gljúfrasteini. Á kortinu má sjá nákvæma staðsetningu þess.

Ásgeir Þór Ásgeirsson aðstoðarlögreglustjóri segir þúsundir minka enn lausa inni í Dalsbúi. Fyrir skemmstu voru hundruð minka í öryggisgirðingunni í kringum búið. „Síðan er búið að veiða og aflífa hundruð dýra líka í nágrenni búsins,“ segir hann.

Fjölmargir koma að aðgerðum í Mosfellsdal. Ásgeir giskar á að það séu á bilinu 40 og 50 manns. Hann bendir á að ef fólk verður vart við minka sé hægt að tilkynna það til þjónustuvers Mosfellsbæjar og að vara þurfi sig á þeim.

„Þó þeir séu krúttlegir að sjá þá eru þetta rándýr,“ segir hann.

Hér má sjá myndir frá Gljúfrasteini þar sem aðgerðastjórn fundar.

Eins og sjá má er fjöldi viðbragðsaðila sem koma að aðgerðum. Hilmar Gunnarsson bæjarstjóri Mosfellsbæjar stjórnar aðgerðahópnum. Við Gljúfrastein eru meðal annars fulltrúar lögreglu, Matvælastofnunar, Landsbjargar, Dýraþjónustu Reykjavíkur og slökkviliðs.

Lögregla hefur ekki fengið tilkynningar um minka í meira en 500 metra fjarlægð frá Dalsbúi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Þá hafi heldur ekki verið tilkynnt um minka utan 500 metra radíuss frá búinu.

Heildarmyndin sé að verða skýrari og aðgerðir gangi vel. Drónar með hitamyndavél hafi verið notaðir í allan morgun og mörgum dýrum hafi verið náð.

„Næstu skref eru að fanga dýr sem eru innan öryggisgirðingar og koma þeim inn í hús. Þegar því er lokið halda minkaveiðimenn áfram með hunda í næsta nágrenni við búið og munu halda því áfram eins lengi og þörf er á.“

Hildur Rún Björnsdóttir lögreglufulltrúi segir að allir sem vettlingi geta valdið vinni að því að ná minkunum í Mosfellsdal. „Við tökum þátt í því og erum búin að vera síðan í morgun.“

Hún staðfestir að brotist hafi verið inn í Dalsbú í nótt. „Það er alveg ljóst að þessi dýr komast ekki út með öðrum hætti en að þeim sé sleppt.“

Innt eftir því hvort grunur leiki á að þeir sömu og brutust inn í Reykjabúið og svínabú Stjörnugríss fyrr á árinu séu að baki húsbrotinu segir Hildur Rún að það komi auðvitað upp í hugann. „Þau mál eru enn í rannsókn. Við eigum eftir að sjá hvað kemur út úr þessu öllu saman.“

Umhverfisverndarsamtökin Landvernd fordæma það að minkunum hafi verið sleppt. Þau segja mikilvægt að finna þann sem hefur hleypt dýrum úr dýrabúum að undanförnu.

„Aðgerðir sem þessi eru hrein og bein hryðjuverk á íslenskri náttúru. [...] Ótrúlegt er að enn sé ekki búið að handsama viðkomandi og afleiðingarnar á náttúru og lífríki óbætanlegar,“ rita samtökin í færslu á Facebook- síðu sinni.

Matvælastofnun lítur það mjög alvarlegum augum að stórum hluta minkanna á Dalbúi í Mosfellsdal hafi verið sleppt lausum í nótt.

„Skemmdarverk af slíkum toga eru til þess fallin að valda fjölda dýra mikilli þjáningu, ótta, meiðslum og dauða. Jafnframt getur mikill fjöldi lausra minka haft alvarleg áhrif á villt fuglalíf og lífríkið í nágrenninu,“ segir í tilkynningu frá stofnuninni.

Þar segir að alifuglum og minni gæludýrum í nágrenninu stafi hætta af því ef fjöldi lausra minka er á ferð. „Eigendur dýra í nágrenni eru hvattir til að tryggja öryggi þeirra með sem bestum hætti.“

MAST fylgir málinu eftir í samvinnu við dýraeigendur, sveitarfélag, lögreglu og aðra viðbragðsaðila. „Komi í ljós að um brot á lögum um velferð dýra hafi verið að ræða mun stofnunin bregðast við í samræmi við lögbundið hlutverk sitt.“

Þóra Jónasdóttir, yfirdýralæknir hjá MAST, segir málið grafalvarlegt. Grunur leiki á að fleiri þúsundir dýra leiki lausum hala þó ekki sé búið að staðfesta endanlega tölu.

Hún segir ekki búið að staðfesta hvernig minkarnir sluppu en margt bendi til þess að þeim hafi verið sleppt viljandi. Málið er til rannsóknar hjá lögreglu.

„Við lítum það alvarlegum augum ef þetta hefur verið skemmdarverk. Þetta veldur bæði þjáningu, ótta, meiðslum og dauða hjá þessum dýrum sem hafa sloppið,“ segir Þóra.

„Ég ætla að leyfa mér að kalla þetta hreint stórslys. Það er ljóst að þetta hefur mjög alvarleg áhrif bæði á villt fuglalíf og annað lífríki í nágrenninu ef svona stór fjöldi af minnkum leikur lausum hala. Það er einnig hætta búin bæði hjá alifuglum og mögulega minni gæludýrum. Þannig að við hvetjum alifuglaeigendur og eigendur annarra dýra í nágrenninu til að tryggja öryggi þeirra með sem bestum hætti.“

Töluverð byggð er í Mosfellsdalnum og Þóra segir erfitt að segja til um hvert dýrin stefni. Villt dýr leiti síður til byggða en minkarnir séu vanir að vera haldnir í húsum og í nálægð við manninn. „Þannig að þeir geta leitað í hús og þangað sem þeir telja að þeir geti fundið æti.“

Ásgeir Pétursson, eigandi Dalsbús, hefur ekki gefið kost á viðtali í dag.

Í samtali við Önnu Lilju Þórisdóttur fréttamann sagði hann þó að brotist hefði verið inn í minkabúið og miklar skemmdir unnar á húsunum.

Ásgeir segir að engin skilaboð hafi verið skilin eftir sem gefi til kynna hver beri ábyrgð á spellvirkinu. Hann lítur á það sem árás á búskapinn.

Að hans sögn voru um 12 þúsund minkar í búinu en ekki liggur fyrir hve margir þeirra sluppu.

Reynir Finndal Grétarsson, íbúi í Helgadal, segist aðallega hafa áhyggjur af minkunum sem sluppu úr Dalsbúi í Mosfellsdal. „Þeir kunna ekkert að bjarga sér og kunna ekki að veiða.“

Hann segir þó að þeir geti unnið tjón á dýraríkinu og að það þurfi að ná þeim.

Reynir segir það ekki ánægjulegt fyrir íbúana í nágrenninu að þeir hafi sloppið úr búinu í morgun. „En það er ekkert hér sem er í hættu.“

„Það er ekkert ólíklegt að það séu einhverjir að verki sem voru á kjúklingabúinu og svínabúinu uppi á Kjalarnesi en ég ætla ekki að fullyrða það,“ segir Hilmar Gunnarsson, bæjarstjóri í Mosfellsbæ.

Hann segir ófremdarástand vegna minkanna sem sluppu og allt tiltækt viðbragð í gangi. „Lögregla, MAST, heilbrigðiseftirlit, allir meindýraeyðar sem hægt var að ná í.“

Minkar teljast ágeng tegund í lífríki Íslands og er raunar eina spendýrið með þá stöðu, að því er fram kemur á vef Náttúrufræðistofnunar. Veiðar á minkum eru heimilar hverjum sem er, hvort sem viðkomandi er handhafi veiðikorts eða ekki.

Minkar voru fyrst fluttir til Íslands haustið 1931. Næstu áratugina fjölgaði minkabúum nokkuð. Reglulega sluppu minkar úr búum og sex árum síðar fannst fyrsta minkagrenið við Elliðaár.

Talið er að landnámi minks á Íslandi hafi lokið í Öræfasveit þegar fyrstu dýrin komu þangað um árið 1975, segir á Vísindavef Háskóla Íslands. Minkur lifir því villtur alls staðar á landinu þar sem lífvænlegt er fyrir tegundina.

Í Alþýðublaðinu árið 1931 var þessari nýju skepnu lýst svo að hún sýndi oft dirfsku og kænsku og væri vís til að gera mikinn óskunda komist hún á bæi.

Veistu meira um málið?

Ef þú ert með ábendingar er hægt að hafa samband við fréttastofu í gegnum netfangið frettir@ruv.is eða með því að hringja í símanúmerið 515-3030.

Fréttamenn RÚV á vettvangi segja að miklir byssuhvellir heyrist við Dalsbú í Mosfellsdal.

Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að við föngun minkanna sé skotvopnum beitt. „Viðbúið er að íbúar og vegfarendur á svæðinu heyri skothvelli vegna þessa.“

Samkvæmt heimildum fréttastofu er grunur uppi um að brotist hafi verið inn í Dalsbúið í morgun.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem dýr sleppa út úr búi í nálægð við höfuðborgarsvæðið nýlega. Brotist var inn í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi í maí og inn í hænsna- og kalkúnabúið á Reykjum í Mosfellsbæ í byrjun júní.

Þau mál eru enn í rannsókn. Þar eru til skoðunar brot á lögum um dýravelferð, innbrot og eignaspjöll. Innbrotin tvö leiddu til þess að einhver dýr drápust og önnur þurfti að aflífa.

Lögregla hefur ekki staðfest hvort málin þrjú tengist.

Íbúi í nágrenni Dalbús segist hafa fengið minka inn á lóðina sína í dag.

Hrönn Ólína Jörundsdóttir, forstjóri Matvælastofnunar, segir að í kringum Dalsbú séu varnargirðingar sem ættu að koma í veg fyrir það að minkarnir sleppi út í umhverfið.

„Ef þeir sleppa er það alvarlegt, hvort sem er fyrir fuglalíf eða annað dýralíf. Við vonum að sem fæstir sleppi alveg út í umhverfið,“ segir hún.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að nokkur hunduð minkar hafi sloppið úr Dalsbúi í Mosfellsdal í morgun. Ekki liggur fyrir hvernig það bar að.

#aflífað #aðgerðastjórn #dýra #hafa #hundruð


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-07-29-hafa-aflifad-hundrud-dyra-adgerdastjorn-fundar-482525

📰 Aðrar fréttir

Vinsæl megrunarlyf reynast maraþonhlaupurum erfið – „Ég þoli þetta ekki lengur“
📅 29.10.2026 👁️ 0
Vinsæl megrunarlyf reynast maraþonhlaupurum erfið – „Ég þoli þetta ekki lengur“
Vinsæl megrunarlyf á borð við Mounjaro og Zepbound geta haft veruleg áhrif á getu fólks til að stunda langhlaup. Nokkrir maraþonhlauparar hafa lýst er...
Orsakir 9 ára kyrrstöðu eru þungt ferli, ríkar kæruheimildir og afskiptaleysi - Leggja til að margfalda raforkuframleiðslu Íslands með almennri leið
📅 29.10.2026 👁️ 0
Orsakir 9 ára kyrrstöðu eru þungt ferli, ríkar kæruheimildir og afskiptaleysi - Leggja til að margfalda raforkuframleiðslu Íslands með almennri leið
Mat Viðskiptaráðs er að Ísland getur rúmlega tvöfaldað raforkuframleiðsluna fyrir 2040. Kortlagðir virkjunarkostir á Íslandi gætu margfaldað hana, en ...
Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 0
Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ - Vísir
Þar kom einnig fram að Sjúkratryggingar muni útvista verkefnum miðstöðvarinnar til annarra verkstæða. Í tölvupósti sem RÚV vísar til frá Sigurði Helga...
Þriggja daga þjóðar­sorg hafin á Spáni - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 0
Þriggja daga þjóðar­sorg hafin á Spáni - Vísir
Að sögn spænska innanríkisráðuneytisins hefur hundruðum manna verið stefnt á vettvang til að aðstoða við björgunar- og hreinsunarstarf. Notaðir eru dr...
Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir nám­skeiði - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 0
Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir nám­skeiði - Vísir
„Björgunarsveitin Brimrún á Eskifirði er komin með fimm straumvatnsbjörgunarmenn sem hafa lokið Straumvatnsbjörgun 1 og 2 og eru að fullu útkallshæfir...
Telja síðustu at­kvæðin í Ísrael - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 0
Telja síðustu at­kvæðin í Ísrael - Vísir
Þar kemur einnig fram að samkvæmt ísraelskum kosningalögum er hverjum kjósanda úthlutaður ákveðinn kjörstaður og getur hann einungis kosið þar. Við sé...
Hópamyndun og hótanir ung­linga við fé­lags­mið­stöð í Kópa­vogi - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 0
Hópamyndun og hótanir ung­linga við fé­lags­mið­stöð í Kópa­vogi - Vísir
Í hverfi 101 var tilkynnt um innbrot og í Kópavogi um hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð við grunnskóla í bæjarfélaginu. Í tilkynningu s...
Þorsteinn Pálsson skrifar: Ekkert bólar á íslensku landbúnaðarleiðinni
📅 29.10.2026 👁️ 2
Þorsteinn Pálsson skrifar: Ekkert bólar á íslensku landbúnaðarleiðinni
Mynd Afstaða bænda var snar þáttur í þeirri ákvörðun, sem fólst
Age-checking methods for under-16s social media ban set out
📅 29.10.2026 👁️ 2
Age-checking methods for under-16s social media ban set out
Ofcom says photo and digital ID, banking checks or facial age estimation can help prove someone is 16 or over.
John Healey promises reduction in welfare bill before next election
📅 29.10.2026 👁️ 2
John Healey promises reduction in welfare bill before next election
The Conservatives criticised the chancellor for not providing more details on welfare reform in his Budget.
Láku upplýsingum um starfsmenn heimavarnarráðuneytisins
📅 29.10.2026 👁️ 2
Láku upplýsingum um starfsmenn heimavarnarráðuneytisins
Upplýsingum um fleiri en 41 þúsund starfsmenn heimavarnarráðuneytis Bandaríkjanna var lekið á netið í gær af óhagnaðardrifnum samtökum uppljóstrara se...
Spain begins three days of mourning after train crash kills dozens
📅 29.10.2026 👁️ 2
Spain begins three days of mourning after train crash kills dozens
Emergency teams worked through the night to find victims after one of the worst rail disasters in Europe's modern history.
Stjórnmálaflokkur ætlar að kæra lestarinnviðafyrirtækið
📅 29.10.2026 👁️ 4
Stjórnmálaflokkur ætlar að kæra lestarinnviðafyrirtækið
Vox, þjóðernissinnaður fjarhægriflokkur á Spáni, hefur segist ætla að kæra fyrirtækið ADIF, sem sér um lestarinnviði landsins, fyrir manndráp af gáley...
Ætla að sekta mótmælendur um fjórföld mánaðarlaun
📅 29.10.2026 👁️ 4
Ætla að sekta mótmælendur um fjórföld mánaðarlaun
Albönsk stjórnvöld hafa ákveðið að sekta róstusama mótmælendur. Sektin hljóðar upp á 500 þúsund albanska leks, sem samsvarar um það bil 750 þúsund ísl...
Þjóðaröryggisráð Moldóvu kallað til vegna umfangsmikillar netárásar
📅 29.10.2026 👁️ 4
Þjóðaröryggisráð Moldóvu kallað til vegna umfangsmikillar netárásar
Þjóðaröryggisráð Moldóvu hefur boðað til fundar vegna netárásar sem gerð var á gagnabanka stjórnvalda. Árásin átti sér stað dagana 19. til 23. október...
George Michael: Family row over dozens items up for auction
📅 29.10.2026 👁️ 5
George Michael: Family row over dozens items up for auction
The brother of the singer's late personal assistant says she would not have wanted the items to be sold.
Notch setur glæsihúsið á sölu - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 4
Notch setur glæsihúsið á sölu - Vísir
Sænski milljarðamæringurinn, sem er einnig þekktur sem „Notch“, greiddi sömu fjárhæð fyrir eignina þegar hann festi á henni kaup árið 2014, að því er ...
Fjar­lægðu mynd­skeið af golfhermi úr Kveiksþætti - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 4
Fjar­lægðu mynd­skeið af golfhermi úr Kveiksþætti - Vísir
Greint var frá því í kvöld að þætti Kveiks um einkarekin búsetuúrræði fyrir börn með fjölþættan vanda hefði verið kippt út af vef Ríkisútvarpsins tíma...
Floods: Building boom in Nepal and India's Uttarakhand puts 300,000 people in path of potential Himalayan disasters, study suggests
📅 28.10.2026 👁️ 5
Floods: Building boom in Nepal and India's Uttarakhand puts 300,000 people in path of potential Himalayan disasters, study suggests
The construction of tourism facilities, housing, and infrastructure has surged in parts of Nepal and India's Uttarakhand.
Stórhættulegur morðingi slapp úr fangelsi – Óttast að hann drepi aftur
📅 28.10.2026 👁️ 3
Stórhættulegur morðingi slapp úr fangelsi – Óttast að hann drepi aftur
Stórhættulegur morðingi slapp úr fangelsi í Tennessee fylki á sunnudagskvöld. Þeir sem þekkja til óttast að hann muni drepa aftur þar sem hann hafi en...
Bolsonaro kveðst réttkjörinn forseti Brasilíu
📅 28.10.2026 👁️ 4
Bolsonaro kveðst réttkjörinn forseti Brasilíu
„Ég er réttkjörinn forseti og glæpamennirnir sem stálu kosningunum í Brasilíu tilheyra glæpasamtökum sem hafa komið á harðstjórn,“ sagði brasilíski fo...
Details of thousands of US immigration agents leaked in major hack
📅 28.10.2026 👁️ 4
Details of thousands of US immigration agents leaked in major hack
A group called the Department of Peace released information on more than 41,000 DHS staff.
Barnalæknir segir mistök að senda eins árs börn í leikskóla
📅 28.10.2026 👁️ 4
Barnalæknir segir mistök að senda eins árs börn í leikskóla
Norskur barnalæknir og prófessor við Háskólann í Ósló telur að börn eigi almennt ekki að hefja leikskólagöngu fyrr en við tveggja til þriggja ára aldu...
Sigurjón: „Það er verulegt áhyggjuefni“
📅 28.10.2026 👁️ 4
Sigurjón: „Það er verulegt áhyggjuefni“
Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, segir það verulegt áhyggjuefni að Karim Askari, formaður Stofnunar múslíma á Íslandi, fordæmi ekki skil...
King Charles shows off dance moves on second day of Caribbean tour
📅 28.10.2026 👁️ 4
King Charles shows off dance moves on second day of Caribbean tour
Earlier in the day, the King paid his respects to the island's fallen servicemen and women.
High-speed train crash kills at least 68 people in Spain
📅 28.10.2026 👁️ 4
High-speed train crash kills at least 68 people in Spain
The crash, between a moving train and another that was stopped further up the track, was caused by an "inexplicable" error, the transport minister sai...
Myndbroti úr golfhermi skipt út í nýjasta þætti Kveiks
📅 28.10.2026 👁️ 4
Myndbroti úr golfhermi skipt út í nýjasta þætti Kveiks
Stutt myndbrot innan úr golfhermi fyrirtækisins Gullkylfunnar birtist í Kveik í gærkvöldi.Myndefnið var tekið af samfélagsmiðli fyrirtækisins Vopnabúr...
Gagnrýni á frumvarp um leigubremsu komi ekki á óvart
📅 28.10.2026 👁️ 4
Gagnrýni á frumvarp um leigubremsu komi ekki á óvart
Leigufélög almennt óánægð með takmarkanir á leiguRagnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir mikilvægt að halda til haga fyrir hverj...
Ofurfyrirsæta blæs nýju lífi í Life-tímaritið - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 4
Ofurfyrirsæta blæs nýju lífi í Life-tímaritið - Vísir
Tímaritið Life hóf göngu sína sem vikurit árið 1936 og fjallaði um stórviðburði, áhrifafólk og hversdagslegan veruleika 20. aldarinnar. Það náði hátin...
Death of US actress Hayden Panettiere ruled accidental, ending local police probe
📅 28.10.2026 👁️ 4
Death of US actress Hayden Panettiere ruled accidental, ending local police probe
The Heroes and Nashville star died in August from the toxic effects of fentanyl, Xanax and several other drugs.
Lýsa upp skammdegið með list
📅 28.10.2026 👁️ 5
Lýsa upp skammdegið með list
Hátíðin hefur verið haldin síðan um aldamót. Fjölmargir viðburðir eru á dagskrá á Austurlandi í tengslum við hátíðina.Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, ...
Stórtíðindi um árangurinn af þyngdarstjórnunarlyfinu retatrútíð - Er Ozempic búið að vera?
📅 28.10.2026 👁️ 5
Stórtíðindi um árangurinn af þyngdarstjórnunarlyfinu retatrútíð - Er Ozempic búið að vera?
Heimurinn bíður með eftirvæntingu eftir þyngdarstjórnunarlyfinu retatrútíð (einnig þekkt sem reta) sem lyfjaframleiðandinn Eli Lilly er nú með í klíní...
Þurft að dvelja í ein­angrunar­klefum vegna pláss­leysis - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 5
Þurft að dvelja í ein­angrunar­klefum vegna pláss­leysis - Vísir
Þetta kemur fram í skriflegu svari Rögnu Bjarnadóttur, forstjóra Fangelsismálstofnunar, við fyrirspurn fréttastofu. Nýlega var fjallað um kvörtun kven...
Heiða Ósk kemur Klettabæ til varnar: „Þá var barnið mitt gripið og öll fjölskyldan mín“
📅 28.10.2026 👁️ 5
Heiða Ósk kemur Klettabæ til varnar: „Þá var barnið mitt gripið og öll fjölskyldan mín“
„Þetta var þungur þáttur. Hann var þungur, ósanngjarn, einhliða og ég varð fyrir mjög miklum vonbrigðum,“ segir Aðalheiður Ósk Þorsteinsdóttir, móðir ...
Stýrivextir ó­breyttir og stutt í kosningar - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 5
Stýrivextir ó­breyttir og stutt í kosningar - Vísir
Peningastefnunefnd bankans tilkynnti í dag að vextir yrðu hvorki hækkaðir né lækkaðir þrátt fyrir að litlar sem engar framfarir hafi orðið í baráttunn...
Losun gróðurhúsalofttegunda meiri á Íslandi en í öðrum Evrópulöndum
📅 28.10.2026 👁️ 5
Losun gróðurhúsalofttegunda meiri á Íslandi en í öðrum Evrópulöndum
Það er töluvert langt í land þegar kemur að losun gróðurhúsalofttegunda á mann á Íslandi borið saman við önnur lönd í Evrópu. Þörf er á samstilltu áta...
„Mér finnst það al­var­legt“ - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 5
„Mér finnst það al­var­legt“ - Vísir
Þetta segir Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi yfirmaður miðlægrar rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um störf lögr...
Hvað eiga tveir kennarar sameiginlegt? Einn á Akureyri annar í Södertelje?
📅 28.10.2026 👁️ 5
Hvað eiga tveir kennarar sameiginlegt? Einn á Akureyri annar í Södertelje?
Hvað eiga tveir kennarar sameiginlegt? Einn á Akureyri annar í Södertelje? Fréttin28. október 2026InnlendarLeave a Comment Samsett mynd: Selma Gamalel...
Komi mest á óvart að Netanjahú hafi ekki tapað meira fylgi
📅 28.10.2026 👁️ 5
Komi mest á óvart að Netanjahú hafi ekki tapað meira fylgi
Magnús Þorkell Bernharðsson, prófessor í sögu Miðausturlanda, segir það koma mest á óvart í þingkosningunum í Ísrael að Netanjahú hafi ekki tapað meir...
Leitar barna úr úrræðum í hverjum mánuði
📅 28.10.2026 👁️ 5
Leitar barna úr úrræðum í hverjum mánuði
Fjallað var um búsetuúrræði fyrir börn með fjölþættan vanda í Kveik. Þar kom meðal annars fram að slíkum úrræðum hefur fjölgað úr einu í sjö á tíu áru...
Óvíst hvort fjármagn fylgi fjölgun lögreglumanna
📅 28.10.2026 👁️ 5
Óvíst hvort fjármagn fylgi fjölgun lögreglumanna
Lögreglumönnum fjölgað um 50 á hverju ári til 2031Fjölga á lögreglumönnum um 50 á ári samkvæmt nýrri löggæsluáætlun til ársins 2031. Þá eiga lögreglum...
Leikstjóri heimildarmyndar um Matthew Perry útskýrir hvers vegna Friends meðleikarar hans eru ekki með í henni
📅 28.10.2026 👁️ 4
Leikstjóri heimildarmyndar um Matthew Perry útskýrir hvers vegna Friends meðleikarar hans eru ekki með í henni
Ný heimildarmynd um Matthew Perry er nú komin á Netflix, en þar vantar nokkur mjög kunnugleg andlit.Í dag (28. október) eru liðin þrjú ár frá skyndile...
„Ég ætla alla­vega að deyja á Ís­landi“ - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 4
„Ég ætla alla­vega að deyja á Ís­landi“ - Vísir
Eyrún flutti út fyrir sex árum og býr með kærastanum sínum Oskari, sem er líka leikari. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan Eyrún tókst á við sit...
Hafi ekki verið í form­legri heim­sókn í moskunni - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 4
Hafi ekki verið í form­legri heim­sókn í moskunni - Vísir
Tilefnið er frétt Morgunblaðsins frá því í gær um að Usmani hefði haldið trúarlegan fyrirlestur á samkomu Stórmoskunnar við Bústaðaveg í Reykjavík á m...
Man sentenced to more than 37 years for murder in south Tenerife
📅 28.10.2026 👁️ 4
Man sentenced to more than 37 years for murder in south Tenerife
The Provincial Court of Santa Cruz de Tenerife has sentenced a man to 37 years and six months in prison for murdering his partner’s brother, attemptin...
Kveiksþætti kippt út tímabundið - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 4
Kveiksþætti kippt út tímabundið - Vísir
„Hann er á leiðinni aftur inn,“ segir Ragnhildur Þrastardóttir, ritstjóri Kveiks, um þáttinn í samtali við Vísi. Hún segir að uppfæra hafi þurft mynde...
Evrópskir hlutabréfamarkaðir náðu sér eftir lækkun – óeirðir í Frakklandi og afkoma HSBC valda áhyggjum
📅 28.10.2026 👁️ 4
Evrópskir hlutabréfamarkaðir náðu sér eftir lækkun – óeirðir í Frakklandi og afkoma HSBC valda áhyggjum
Evrópskir hlutabréfamarkaðir náðu sér eftir lækkun – óeirðir í Frakklandi og afkoma HSBC valda áhyggjum Fréttin28. október 2026Erlent, Evrópusambandið...
Múslímavandi Samfylkingar
📅 28.10.2026 👁️ 4
Múslímavandi Samfylkingar
Múslímavandi Samfylkingar Fréttin28. október 2026Innlent, Páll Vilhjálmsson, PistlarLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar: Talsmaður Samfylkingar ...
Söfnuðust saman við sendi­ráðið og mót­mæltu refsiaðgerðum - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 4
Söfnuðust saman við sendi­ráðið og mót­mæltu refsiaðgerðum - Vísir
Í tilkynningu sem birt var á Facebook-síðu sendiráðsins kom fram að sendiráðið yrði opnað á réttum tíma í fyrramálið, fimmtudaginn 29. október. Þá vær...
Dæmdir fyrir að kveikja í Teslu-bifreið lögreglukonu
📅 28.10.2026 👁️ 4
Dæmdir fyrir að kveikja í Teslu-bifreið lögreglukonu
Þrír menn hafa verið sakfelldir í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að kveikja í Teslu-bifreið rannsóknarlögreglukonu hjá Lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu....