Hægriflokkurinn Venstre í Danmörku er fallinn frá hugmyndum um að Danir segi sig frá Evrópusamningnum um ríkisfang. Þess í stað eigi Danir að beita sér fyrir breytingum á því.
Samkomulagið var nokkuð til umræðu í Danmörku fyrir þingkosningar í vor. Venstre – og fleiri flokkar raunar – töldu að skuldbindingin gerði Dönum erfiðara að framfylgja útlendingastefnu sinni.
Meðal þess sem samkomulagið felur meðal annars í sér er að ríki svipti ekki fólk ríkisborgararétti nema það hafi framið glæpi sem gangi gróflega gegn grundvallarhagsmunum ríkisins.
Nokkur umræða hefur verið um það í Danmörku að svipta glæpamenn af erlendum uppruna ríkisborgararétti. Ljóst er að ákvæði samningsins gætu bundið hendur stjórnvalda í þeim efnum.
Hugmyndir um að svipta brotamenn af erlendum uppruna ríkisborgararétti hafa einnig komið upp hér á landi. Þingmenn Sjálfstæðisflokks lögðu fram frumvarp þess efnis á síðasta þingi. Ísland er meðal þeirra ríkja sem hafa fullgilt samninginn.
Stjórnarmyndunarviðræður standa enn yfir í Danmörku eftir kosningar í mars. Aldrei í danskri sögu hefur tekið jafnlangan tíma að mynda ríkisstjórn.