Pétur Pétursson hefur látið af störfum sem slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu eftir að ábendingar bárust stjórn er varða stjórnarhætti hans.
Sveinn Ægir Birgisson, formaður stjórnar Brunavarna Árnessýslu, staðfestir að ábendingar er varða stjórnarhætti Péturs hafi borist stjórninni.
„Stjórnin er með ákveðna þætti til skoðunar eftir ábendingar sem bárust, að svo stöddu tjáum við okkur ekkert frekar um málið.“
Pétur tók við starfi slökkviliðsstjóra Brunavarna Árnessýslu árið 2016, áður gegndi Kristján Einarsson starfinu.
Ekki náðist í Pétur við vinnslu fréttarinnar.