Sænska þingið átti að greiða atkvæði um frumvarp minnihlutastjórnar Ulfs Kristersson, forsætisráðherra, um að lækka tímabundið sakhæfisaldur úr fimmtán árum í þrettán.
Frumvarpið hefur reynst umdeilt en því var ætlað að bregðast við glæpaöldu á meðal ungmenna sem glæpagengi notfæra sér í auknum mæli til ýmissa skítverka, þar á meðal manndrápa og sprengjutilræða.
Gunnar Strömmer, dómsmálaráðherra, sagðist gera ráð fyrir að breið samstaða gæti náðst um frumvarp sem gengi skemmra og lækkaði aldurinn niður í fjórtán ár.
„Ég held að það sé ábyrg leið til þess að taka á málinu,“ segir Strömmer á blaðamannafundi í morgun.
Jafnaðarmannaflokkurinn, sem mælist með mest fylgi í skoðanakönnunum fyrir þingkosningar sem fara fram í september, er fylgjandi því að lækka sakhæfisaldurinn í fjórtán ár. Aðrir stjórnarandstöðuflokkar vilja ekki hrófla við aldrinum, að því er segir í frétt sænska ríkisútvarpsins.
Verði nýtt frumvarp að lögum tekur það gildi í september.