Veðurstofa Íslands hefur opnað sérstakt spásvæði vegna sólmyrkvans miðvikudaginn 12. ágúst. Þar má nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir, skoða spá um skýjahulu á korti og fylgjast með nýjustu tilkynningum frá veðurvakt.
Fólk geti elt veðrið
Á yfirlitskorti efst á síðunni má sjá almyrkvaslóðina og helstu veðurupplýsingar fyrir valda staði. Einnig hefur verið útbúin ný kortaþekja sem sýnir spá um heildarskýjahulu yfir landinu fyrir þann tíma sem valinn er. Þekjan er hugsuð til þess að auðvelda notendum að bera saman horfur á skýjahulu milli staða og spátíma.
Á síðunni eru jafnframt ítarlegar staðarspár fyrir fjölda staða á almyrkvaslóðum. Þar má meðal annars skoða spár um skýjafar, úrkomu, hita og vind fyrir einstaka staði og fletta á milli daga og spátíma. Þrátt fyrir að búið sé að gefa út rigningar- og skýjahuluspá er enn óvissa um útbreiðslu og tímasetningu skýja, sérstaklega á almyrkvaslóðum.