Gypsy Rose minnist síðustu stundanna með Ken Urker

Gypsy Rose Blanchard, sem þekkt er úr raunveruleikaþáttunum Life After Lockup, hefur sagt frá síðustu samskiptum sínum við Ken Urker, unnusta sinn sem lést á 34 ára afmælisdegi sínum þann 1. október.
Í viðtali við Page Six, sem birtist í gær, segir Gypsy Rose að hún hafi séð Urker í síðasta sinn þegar hún kom honum á óvart með mat í lok september.
„Í einni af samskiptalotum okkar ákvað ég að koma honum á óvart með Burger King. Ég þóttist vera sendill frá DoorDash og skildi matinn eftir fyrir utan dyrnar hjá honum,“ sagði hún.
„Þetta var svo einfalt og kjánalegt augnablik, en núna hefur það meiri merkingu fyrir mig en ég get nokkurn tíma komið í orð. Ég vissi ekki að þetta yrði síðasta skiptið sem ég sæi hann í eigin persónu,“ bætti hún við.
Gypsy Rose, sem er 35 ára, átti 21 mánaðar gamla dótturina Aurora með Urker. Hún deildi einnig skjáskoti úr einu af síðustu textasamskiptum þeirra.
Urker svaraði uppátæki hennar í léttum tón og skrifaði: „Guð minn góður, þú ert svo klikkuð, haha!“ Hann bætti við: „Þú keyptir meira að segja Hershey-böku handa mér.“
Hann þakkaði henni síðan fyrir hugulsemina og hún svaraði: „Ekkert að þakka.“
Þótt samskiptin hafi ekki virst sérstaklega merkileg á þeim tíma eru þau nú orðin minning sem Gypsy Rose segir að hún muni varðveita.
„Þegar ég lít til baka er ég þakklát fyrir að ein af síðustu minningum mínum um Ken sé létt, hlý og full af góðvild,“ sagði hún við Page Six.
„Stundum verða minnstu augnablikin að dýrmætustu minningunum,“ bætti hún við. „Ég mun varðveita þessa minningu alla ævi.“
Ken fannst látinn á heimili sínu
Samkvæmt lögregluskýrslu sem E! News hefur undir höndum fannst Urker látinn á heimili sínu í Louisiana þann 1. október. Dylan Blanchard, hálfbróðir Gypsy Rose, fann hann þar. Í skýrslunni kemur fram að fíkniefnaáhöld hafi verið í kringum hann.
Yfirvöld hafa ekki enn staðfest endanlega dánarorsök Urkers þar sem niðurstöður eiturefnarannsókna liggja ekki fyrir. Í lögregluskýrslunni er þó vísað til ofskömmtunar, en Gypsy Rose hefur einnig sagt að hún telji að hann hafi látist af þeim sökum.
„Ég veit ekki hvort þetta var viljandi eða ekki,“ sagði hún í yfirlýsingu til People þann 2. október. „Honum hafði ekki liðið vel andlega undanfarið.“
Hún bætti við að hún ætti erfitt með að trúa því sem gerst hefði.
„Ég trúi þessu ekki. Ég get ekki hugsað skýrt. Ég hef öskrað þar til mér sviður í hálsinum,“ sagði hún.