Gylfi Þór Þorsteinsson, oddviti Viðreisnar í Mosfellsbæ og sviðsstjóri hjá Rauða krossinum, minnist móður sinnar sem var myrt á þessum degi fyrir þrjátíu árum. Hann segir að alltaf hafi verið stutt í gleðina hjá henni.
„Í dag eru 30 ár síðan mamma mín var myrt, elsta dóttir mín var þá mánaðargömul og ég 26. ára. Enn þann dag í dag er fólk sem ég þekki ekki að koma upp að mér og minnast mömmu, þannig er líf efir dauðan,“ segir Gylfi Þór. „Ég mun kveikja á kerti í kvöld og minnast hennar með hlýju og gleði, því þannig var hún. Hlý og alltaf stutt í gleðina.“
Birtir hann mynd af fermingardegi móður sinnar.
„Nú eru börnin mín á svipuðum aldri og ég var þá, setur þetta allt í sérstakt samhengi fyrir mig nú,“ segir Gylfi Þór.
Sjá einnig:
Gylfi Þór opnar sig um morðið á móður sinni – „Þetta var sjón sem ég mun aldrei gleyma“
Móðir Gylfa Þórs var myrt árið 1996 á sveitabæ á Norðurlandi af bróður sínum. Hún hafði þá farið þangað til þess að gera upp mál eftir andlát móður þeirra. Bæði Gylfi Þór og faðir hans voru yfirheyrðir út af málinu á sínum tíma á lögreglustöðinni á Akureyri.
„Þegar pabbi losnaði úr yfirheyrslunni hjá lögreglunni fórum við upp á hótel og kveiktum á sjónvarpinu. Þar var fyrsta frétt að morð hefði verið framið á þessum bæ og mynd af bænum. Þannig fréttum við að hún hefði verið myrt,“ sagði Gylfi Þór á sínum tíma í viðtali við mbl.is.