Suðvestanátt setur mark sitt á norðvestanvert landið og miðhálendið í dag með hvössum vindi sem gæti valdið farartækjum sem taka á sig vind vandræðum. Í hviðum getur vindurinn farið í 30 metra á sekúndu og reynst ferðalöngum hættulegur.
Minni vindur er annars staðar og það dregur úr vindi með kvöldinu.
Veðurspáin er svohljóðandi:
Suðvestlæg átt, víða 13-20 m/s norðvestan til, annars 8-15, en dregur úr vindi með kvöldinu. Dálítil rigning eða súld, en bjart með köflum austanlands. Hiti 11-26 stig, hlýjast á Austurlandi.
Suðvestlæg átt, 5-13 m/s á morgun, skýjað á vestanverðu landinu og sums staðar súld, en víða léttskýjað eystra og kólnar lítið eitt.
Veðurfræðingur Vegagerðarinnar birti þessa ábendingu í morgun:
„Í dag er spáð hvassri sunnanátt með hviðum frá 25-35 m/s á Vesturlandi og Vestfjörðum fram á kvöld. Á Norðurlandi og á norðanverðu miðhálendinu verður álíka hvasst frá hádegi og fram yfir miðnætti. Eins er búist við hvassviðri í austanverðum Öræfum frá því síðdegis og þangað til í fyrramálið.
Slíkur vindur skapar varhugaverðar aðstæður fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind, sem og tengivagna. Vegfarendur er hvattir til að fylgjast með veðurspám og útgefnum viðvörunum.“