Guðni Aðalsteinsson, forstjóri fasteignafélagsins Reita, hefur áhuga á að útvíkka starfsemi félagsins og sér framtíðina fremur sem vettvang þekkingar- og þróunarfyrirtækis, sem tekur til sín stærri hluta virðiskeðjunnar en nú. Í þessu sambandi horfir hann til Norðurlandanna og víðar þar sem starfsemi fasteignafélaga er fjölbreyttari en hér á landi. Hann segir fasteignafélög hér á landi hafa byggst upp í kringum eignir sem urðu nokkurn veginn munaðarlausar í hruninu. Guðni er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Markaðarins
Guðni Aðalsteinsson. Áfram vöntun á atvinnuhúsnæði og uppbyggingu – vill stærri hluta virðiskeðjunnar