Guðmundur í Baggalút kominn með nýja vinnu

Blaðamannafélag Íslands hefur ráðið Guðmund Pálsson í starf verkefna- og þróunarstjóra félagsins. Hann mun meðal annars leiða ný verkefni í samræmi við stefnu stjórnar félagsins og vinna að fræðslu og nýliðun.
Fram kemur í tilkynningu frá Blaðamannafélaginu að ráðningin sé liður í því að efla starfsemi félagsins enn frekar og styðja við framtíðarsýn þess um öflugt fag- og stéttarfélag blaðamanna. Jafnframt sé markmiðið að stuðla að sterkara umhverfi fyrir blaðamennsku hér á landi.
Guðmundur hefur um tuttugu ára reynslu af störfum við fjölmiðla. Hann hóf fjölmiðlaferil sinn sem blaðamaður á DV en starfaði síðar hjá RÚV, þar sem hann kom að öllum miðlum stofnunarinnar. Lengst af starfaði hann sem dagskrárgerðarmaður í útvarpi.
Guðmundur hefur einnig reynslu af upplýsingamiðlun og starfaði meðal annars fyrir Hafrannsóknastofnun og Íslenska erfðagreiningu.
Hann er með BA-próf í íslensku frá Háskóla Íslands og meistarapróf í verkefnastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík.
Guðmundur er jafnframt einn stofnenda Baggalúts. Starfsemi Baggalúts hefur í gegnum tíðina verið fjölbreytt og er nafnið meðal annars þekkt fyrir samnefnda hljómsveit og tónleikahald. Þá hélt hópurinn um árabil úti vinsælli heimasíðu.