„Það er líklega betra að hafa hann inni í tjaldinu og mígandi út, frekar en utan við tjaldið og mígandi inn,“ sagði Lyndon B Johnson, Bandaríkjaforseti, árið 1963 þegar hann ákvað að halda J. Edgar Hoover, forstjóra Alríkislögreglunnar (FBI) áfram í embætti.
Forstjórinn var alræmdur fantur. Hann misnotaði aðstöðu sína, braut lögin sem hann átti að framfylgja og kúgaði baráttufólk fyrir mannréttindum.
Andvökunótt
Vandi Hildar Björnsdóttur varð ljós um leið og talningu lauk í Reykjavík. Trúlega hefur hún sofið lítið þá nóttina.
Átti hún að hafa Miðflokkinn innan tjaldsins og skjóta þannig pólitísku skjólshúsi yfir öfgafullan málflutning hans og fordómana í garð innflytjenda og hinsegin fólks?
Eða átti hún að hafa Miðflokksmenn utantjalds, taka á sig skvetturnar úr koppum þeirra, en eiga í staðinn samstarf í borgarstjórn við hófsamara fólk, sem sér heiminn í lit en ekki svart/hvítu.
Miðflokkur innan tjalds eða utan
Með Miðflokksmenn innanborðs hefði Hildur ekki reitt til reiði heilaga hægrið í Sjálfstæðisflokknum, sem nú hótar fjöldaúrsögnum.
En hún hefði vafalaust þurft að eyða dýrmætum tíma sínum að kenna þeim pólitíska mannasiði.
Hildur kaus að taka slaginn við öfgahægrið, innan síns eigin flokks og utan.
Með Miðflokkinn utan borðs, verður væntanlega vinnufriður innan meirihlutans, þótt ófriður gæti orðið á borgarstjórnarfundum.
Það eykur líkurnar á því að árangur náist, byggður á breiðri samstöðu og umbótum, sem lifa af næstu kosningar.
Verkefni í vændum
Tökum eitt dæmi.
Í borginni býr fjöldi útlendinga. Þar eru heimili þeirra og þar er atvinna þeirra. Þar eru skólar barnanna þeirra. Allir skulu þeir fá að njóta sín, óháð uppruna, hörundslit, kynhneigð eða hæfni.
Og borgin þarf á þeim að halda. Án þeirra myndi allt loka og stöðvast. Við myndum ekki lifa af einn dag án þeirra.
Á kjörtímabilinu er ljóst að upp munu koma mál, sem varða vegferð og velferð þessara meðborgara okkar. Það þarf ekki hámenntaðan stjórnmálaskýranda til þess að útskýra í fréttunum hvernig Miðflokkurinn mun taka því.
Þá er eins gott að meirihluti borgarstjórnar hegði sér eins og fullorðið fólk.
Miðflokkurinn þarf í tamningu
Í Miðflokknum er margt ungt og öflugt fólk sem ætlar sér stóra hluti og mun láta að sér kveða.
Þótt merki flokksins sé prjónandi hestur, þarf flokkurinn ekki að rísa hneggjandi upp á afturfæturna í öllum málum. Rétt eins og Hildur, nennir enginn að hafa slægar ótemjur á húsi.
Höfundur er lífeðlisfræðingur.