Ég vil byrja á því að óska nýrri borgarstjórn til hamingju. Hildur Björnsdóttir var sigurvegari þessara kosninga og er ekki við öðru að búast en hún muni leysa hlutverk sitt vel af hendi sem borgarstjóri. Hún hefur mikla þekkingu og reynslu af málefnum Reykjavíkurborgar og er skynsöm og rökföst.
Ég hef trú á því að sú stefna sem nýr meirihluti hefur boðað muni gera góða borg enn betri. Það er nefnilega margt gott sem hefur verið gert í Reykjavík síðustu árin, þó deila megi um ýmis atriði. Nýr meirihluti hefur boðað ýmsar breytingar sem margir hafa beðið eftir og það verður spennandi að fylgjast með þeim á kantinum í nágrannasveitarfélaginu Seltjarnarnesi og af vinnustað mínum við Suðurlandsbraut sem er orðin umtalaðasta gata borgarinnar.
Ýmsar efasemdir hafa komið fram um val Hildar á meirihluta og hafa jafnvel „Miðflokksmenn“ í Sjálfstæðisflokknum boðað úrsögn úr Sjálfstæðisflokknum. Þá hafa komið fram efasemdir um tillögu hennar um að borgarfulltrúi í minnihluta verði stjórnarformaður Orkuveitunnar. Með því sé hún að reyna draga vígtennurnar úr Miðflokknum og gera hann undirgefinn meirihlutanum. Ég held að það þurfi enginn að óttast slíkt sem hefur fylgst með Miðflokknum. Hefur varaformaður Miðflokksins til að mynda lýst því yfir að Miðflokkurinn muni veita öflugt aðhald í minnihlutanum en um leið fagna því sem vel er gert og hvetja meirihlutann til dáða.
Íbúar Reykjavíkur bera ekki mikið traust til borgarstjórnar og það traust þarf að efla. Hildur hefur sagt að hún hafi valið þann kost sem hún taldi bestan fyrir Reykjavík við myndun meirihluta borgarstjórnar. Ég tel að það hafi verið rétt mat hjá henni. Þá hefur Einar Þorsteinsson m.a. sagt að hann vonast eftir samheldnari borgarstjórn þar sem dregið verði úr „tilgerðarpólitík“ og ágreiningi og horft til þess að allir 23 borgarfulltrúarnir séu þarna til að þjóna almenningi.
Ari Edwald þarf því að meta hvort hann telji það þjóna hagsmunum borgarbúa betur að taka boði Hildar þannig að þekking hans og reynsla nýtast borgarbúum eða hvort hann telji svo ekki vera og einhver annar sé betur til þess fallinn en hann. Flóknara er það nú ekki.
Höfundur er lögmaður.