Flugfreyja hollenska flugfélagsins KLM er með einkenni hantaveiru eftir að hafa verið í návígi við konu sem var um borð í skemmtiferðaskipinu Hondius. Verið er að rannsaka hvort hún sé smituð.
Hollenska flugfélagið KLM staðfesti í gær að konu sem lést í Suður-Afríku þann 26. apríl hafi verið vísað frá borði vélar félagsins daginn áður.
Hjón frá Hollandi sem voru um borð í Hondius létust bæði. Maðurinn lést 11. apríl og eiginkona hans flaug til Jóhannesarborgar í Suður-Afríku 24. apríl. Ástand konunnar versnaði svo 25. apríl og fór hún um borð í flugvél KLM sem var á leið til Amsterdam.
„Áhöfnin ákvað að leyfa farþeganum ekki að ferðast vegna heilsufars á þeim tíma,“ sagði í yfirlýsingu í yfirlýsingu KLM.
Flugfreyjan er á sjúkrahúsi í Amsterdam og samkvæmt hollenska heilbrigðisráðuneytinu er unnið að smitrakningu farþega vélarinnar.