Í fréttatilkynningu þess efnis segir að málavextir séu með þeim hætti að 12. apríl síðastliðinn hafi tollgæslan á Keflavíkurflugvelli stöðvað konu og karl við komu til landsins, sem hafi reynst vera með fíkniefni í farangri sínum.
Rannsókn tæknideildar lögreglu hafi leitt í ljós að haldlögð fíkniefni reyndust vera 30,8 kíló af amfetamíni. Héraðsdómur Reykjaness hafi úrskurðað hin handteknu í gæsluvarðhald til 20. apríl næstkomandi og lögreglan á Suðurnesjum muni leggja fram kröfu um framlengingu gæsluvarðhalds í framhaldi.
„Rannsókn málsins er á frumstigi og verst lögreglan á Suðurnesjum frekari frétta að svo stöddu.“