Samkvæmt athugasemdum við færsluna hefur sést til minks í morgunsárið.
„Við höfum ekki orðið vör við mink en ég verð heima með hundinn í dag,“ segir Tómas Atli Ponzi, bóndi að Brennholti í Mosfellsdal. „Þetta er alveg skelfilegt fyrir lífríkið, fyrir fuglalífið og allt fólkið hér og náttúruna.
Tómas heldur meðal annars hænur og segist hafa misst allt að 20 hænur þegar minkar hafa sloppið frá búinu. Mikið hafi verið kvartað undan minkabúinu en ekkert að gert.
„Það eru þrír minkaveiðimenn reglulega hér í dalnum að fylgjast með og athuga hvort það eru minkar á svæðinu. Það segir sína sögu,“ segir Tómas.
Bjarni Bjarnason á Hraðastöðum, þar sem rekinn er húsdýragarður, segist hafa verið að frétta af málinu nú fyrir stundu. Hann segir dýrin á bænum í öruggum búrum. Þá sé von til þess að öryggisgirðing í kringum minkabúið haldi dýrunum frá því að sleppa út, nema skemmdarverk hafi verið unnin á henni.
Fréttin verður uppfærð.
Veistu meira um málið? Áttu myndir? Eða ertu með aðrar ábendingar? Sendu okkur fréttaskot.
Veistu meira um málið? Áttu myndir? Eða ertu með aðrar ábendingar? Sendu okkur fréttaskot.