Hin 13 ára gamla Kolfinna Rán glímir við krabbamein í annað sinn á ævinni en hún greindist í lok júlí á síðasta ári í annað sinn.
Hún greindist fyrst með veikindin þegar hún var aðeins tveggja og hálfs árs og sigraðist þá á þeim.
Mikill kostnaður fylgir veikindunum og hefur Kolfinna þurft að gangast undir nokkrar aðgerðir og einhverjar af þeim erlendis.
Til að standa straum af kostnaði verður haldið svokallað styrktarlottó þar sem fólk getur greitt fyrir lottómiða og eru vinningar í boði en einstaklingar, fyrirtæki og íþróttafélög hafa lagt sitt af mörkum.
Kolfinna er dóttir Olgu Færseth, sem var á sínum tíma ein besta körfu- og fótboltakona landsins.
Hólmfríður Magnúsdóttir, fyrrverandi liðsfélagi Olgu með landsliðinu og hjá KR, stendur á bak við söfnunina en nánari upplýsingar má nálgast hér fyrir neðan.