Greiddi ekki af láninu og nú vill Arion fá 84 milljónir

Arion banki hefur höfðað mál gegn fyrirtæki með ítölsku nafni, sem skráð er til heimilis í Reykjavík, og krefst greiðslu á tæplega 84 milljóna króna skuld.
Samkvæmt stefnu málsins byggist krafan á verðtryggðu skuldabréfi sem fyrirtækið gaf út í mars 2025. Upphafleg fjárhæð lánsins var 82,5 milljónir króna og var fasteignin sett að veði með fyrsta veðrétti til tryggingar greiðslu skuldarinnar.
Gjalddagi skuldabréfsins 1. janúar síðastliðinn var ekki greiddur og í kjölfarið gjaldfelldi bankinn lánið. Eftirstöðvar skuldarinnar námu þá 83,7 milljónum króna. Þar af voru rúmar 80 milljónir eftirstöðvar höfuðstóls en tæpar 2,9 milljónir voru verðbætur. Þá bættust við vextir og verðbætur á þá.
Bankinn krefst þess að fyrirtækið greiði alla fjárhæðina ásamt dráttarvöxtum frá 1. janúar 2026 og málskostnaði.
Stefnan var birt í Lögbirtingablaðinu þar sem skráð lögheimili fyrirtækisins er í atvinnuhúsnæði og ekki er vitað um starfsemi þess þar. Þá er fyrirsvarsmaður félagsins skráður með óþekkt heimilisfang á höfuðborgarsvæðinu.
Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur 19. nóvember.