Það eru liðin 48 ár síðan kvikmyndin Grease kom út og Grease æði skall yfir heimsbyggðina. Kvikmyndin varð gríðarlega vinsæl þar á meðal hér á landi þar sem hún var frumsýnd 20. janúar 1979 og fólk beið í löngum röðum eftir miðum í Háskólabíó. Tvöföld plata með tónlistinni rokseldist, brilljantín seldist upp og allir vildu læra Grease dansana. Framhaldsmynd kom út fjórum árum síðar, þó með öðrum leikurum og minni vinsældum.
Grease-stjarna lifir sem „einbúi“