Tveir viðskiptavinir Parísarhjólsins á Miðbakka óskuðu eftir aðstoð lögreglu í gær en þeir höfðu keypt ferð með hjólinu og voru fastir í því. Svo virðist sem starfsmenn hafi gleymt fólkinu en búið var að slökkva á hjólinu og starfsmennirnir virtust vera farnir heim.
Þegar lögregla mætti á staðinn höfðu starfsmenn hins vegar uppgötvað mistökin og voru búnir að losa fólkið úr prísundinni segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Tilkynnt var um eld á svölum í fjölbýlishúsi í hverfi 104 í Reykjavík en þegar lögregla kom á staðinn kom í ljós að húsráðandi var að grilla og enginn var eldurinn.
Maður var handtekinn af lögreglunni í miðborginni þar sem hann var til vandræða og var að betla fyrir utan verslanir. Lögreglan fjarlægði einnig einstakling í annarlegu ástandi sem var að reyna að komast inn í íbúðir í Garðabæ. Þá var óskað eftir aðstoð lögreglu á bar í Kópavogi vegna einstaklings sem hafði fengið sér heldur mikið í tánna og var til almennra leiðinda, líkt og það er orðað í dagbók lögreglu.