Skammbyssurnar sem Recep Tayyip Erdogan forseti Tyrklands gaf öllum þjóðarleiðtogum NATO-ríkja á leiðtogafundi þeirra í Ankara í síðustu viku hafa valdið ýmiss konar vandræðum. Í sumum tilvikum, eins og á Íslandi, hefur vopnið alls ekki komið til landsins og í öðrum hefur þurft að grípa til sérstakra ráðstafana enda er innflutningur á svona vopni víða bannaður eða sætir verulegum takmörkunum.
Gjöfin var skammbyssa af gerðinni Gümüşay .357 Magnum. Með fylgdu sex skot í sérstökum kassa. Nafn hvers leiðtoga var áletrað á byssuna. MKE, vopnaframleiðandi tyrkneska ríkisins, framleiddi byssuna en framleiðslunni var hætt um aldamót. Byssan var pökkuð inn og því uppgötvuðu margir leiðtogar ekki hvað var í pakkanum fyrr en löngu eftir að tekið var við honum. Með byssunni fylgdu sérstök skilaboð um að vopnið væri undanþegið útflutningstakmörkunum.
Erdogan hefur sjálfur ekki tjáð sig um hvers vegna byssan varð fyrir valinu sem gjöf. Tyrkneskir fjölmiðlar hafa þó sagt að hún eigi að gefa til kynna í hve miklum vexti varnartengd framleiðsla sé í landinu.
Aðstoðarmaður Kristrúnar Frostadóttur greindi frá því að byssan sem hún fékk að gjöf hefði verið send í sendiráð Íslands gagnvart Tyrklandi, sem er í Osló. Hún yrði gerð óvirk.
En það er misjafnt til hvaða ráðstafana leiðtogar hafa þurft að grípa til.
- Byssurnar sem Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands, Friedrich Merz kanslari Þýskalands og Rob Jetten forsætisráðherra Hollands fengu urðu eftir í Tyrklandi, þar sem það er flókið lagalegt ferli að flytja slíkt vopn til þessara landa, sérstaklega þegar það er virkt.
- Mark Carney forsætisráðherra Kanada sá aldrei þessa byssu og frétti aðeins af því hvað var í pakkanum í spjalli við aðra leiðtoga. Hann sagði þetta töluvert öðruvísi gjöf en þá sem hann kom með til tyrkneska forsetans, sem var krukka af sírópi. Kanadíska öryggislögreglan gerði byssuna óvirka þar sem vopnið er ekki löglegt í Kanada. Ekki er ljóst hvar hún endar en Carney hafði sjálfur orð á því að hún ætti heima á stríðssafni. Skotin urðu eftir í Tyrklandi.
- Bart De Wever forsætisráðherra Belgíu uppgötvaði ekki hver gjöfin var fyrr en hann var lentur í Belgíu. Hún var afhent lögreglu á flugvellinum tafarlaust til að hún yrði geymd á öruggum stað og meðhöndluð á viðeigandi hátt.
- Öryggislið De Wever sá líka um byssurnar sem Ursula von der Leyen forseti framkvæmdastjórnar ESB og Antonio Costa forseti leiðtogaráðs ESB fengu. Talsmaður von der Leyen sagði að byssan hennar yrði gerð óvirk og gefin á stríðsminjasafn.
- Skrifstofa Luc Frieden forsætisráðherra Lúxemborgar segir að byssan verði geymd með öðrum diplómatískum gjöfum - eftir að hún hafi verið gerð óvirk.
- Byssan sem Karol Nawrocki forseti Póllands fékk er einnig komin til Póllands. Þar var öryggis gætt sérstaklega vegna biturrar reynslu. Sprengjuvarpa sem pólski lögreglustjórinn fékk að gjöf frá Úkraínu í desember 2022 sprakk á skrifstofunni hans og lögreglustjórinn slasaðist lítillega af þeim sökum.
- Starfslið Ulfs Kristersson forsætisráðherra Svíþjóðar segir að byssan verði flutt þangað eftir tiltækum löglegum leiðum. Frekari upplýsingar um leiðirnar hafa ekki fengist.
- Danska ríkisútvarpið komst að því, með miklum erfiðismunum, að byssan hefði allan tímann verið í vörslu dönsku öryggislögreglunnar. Hún sæi um að flytja byssuna til Danmerkur.
- Donald Trump forseti Bandaríkjanna fékk sérstaka útgáfu af byssunni, með gylltu skafti. Hvíta húsið hefur ekki svarað spurningum fjölmiðla um hvar sú byssa er nú niðurkomin.
Fjölmiðlar segja að þó að þjóðhöfðingjar séu sífellt að skiptast á gjöfum gerist það sjaldan að gjafirnar krefjist jafn mikils umstangs og þessi gjöf.