Nýtt fyrirkomulag verður tekið upp í haust þegar gjaldtaka hefst á bílastæðum við Smáralind.
Fyrirkomulagið er innleitt til þess að auðvelda viðskiptavinum að finna stæði nálægt inngöngum hússins. Fyrstu fjórar klukkustundirnar verða gjaldfrjálsar, en eftir þann tíma verður bílastæðagjald innheimt sem nemur 450 kr. á klukkustund.
„Aðsókn í Smáralind hefur aukist verulega á síðustu árum. Stæðin við bygginguna hafa í vaxandi mæli verið nýtt til langtímadvalar, af fólki sem starfar eða býr í nágrenninu, með geymslu ökutækja sem ekki tengjast heimsóknum í Smáralind. Þetta hefur leitt til þess að viðskiptavinir hafa átt erfiðara með að finna laus stæði á hentugum stöðum við húsið,“ segir í tilkynningu frá Heimum fasteignafélagi.
Sporna við því að stæðin séu nýtt sem langtímastæði
Þessar breytingar eru gerðar til þess að koma í veg fyrir það að stæðin séu nýtt sem langtímastæði. Þannig verður reynt að tryggja að bílastæðin nýtist þeim sem eiga erindi í verslanir, veitingastaði og aðra þjónustu í Smáralind.
„Allir munu áfram geta lagt í fjórar klukkustundir við Smáralind án þess að greiða neitt fyrir það. Þeir sem helst munu finna fyrir breytingunum eru þeir sem hafa verið að geyma bíla og önnur farartæki þarna um langa hríð. Þeir aðilar munu þurfa að finna aðrar leiðir. Við viljum tryggja að viðskiptavinir Smáralindar geti gengið að því sem vísu að fá gott bílastæði þegar þeir koma í húsið. Langflestar heimsóknir fólks eru innan við fjögurra klukkustunda langar og því ætti breytingin ekki að hafa áhrif á viðskiptavini Smáralindar,“ segir Baldur M. Helgason, framkvæmdastjóri viðskipta hjá Heimum.
Í tilkynningu kemur fram að notast verði við nýjustu tækni í myndgreiningu og greiðslulausnum til að framfylgja breytingunum og að kerfið verði gert eins þægilegt og mögulegt er fyrir viðskiptavini.