Mögulegt er að stemma stigu við útbreiðslu ebólufaraldurs í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó að mati Tedros Adhanoms Ghebreyesus, framkvæmdastjóra Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar.
Hann lýsti þessu yfir þegar hann kom til landsins í gær og segir stofnunina ekki styðja ferðabann til að stöðva útbreiðsluna, það geri lítið gagn. „Við getum stöðvað þennan faraldur í sameiningu,“ sagði Ghebreyesus.
Stofnunin segir að á annað þúsund ebólutilfelli hafi greinst í Kongó og að tæplega 240 hafi látist úr sjúkdómnum frá því um miðjan maí. Mun fleiri kunni að hafa smitast.
Stjórnvöld í nágrannaríkinu Úganda, þar sem ebóla hefur komið upp, hafa lokað landamærunum að Kongó öllum nema heilbrigðisstarfsfólki og þeim sem sinna mannúðaraðstoð. Einnig má flytja mat og aðrar vörur yfir landamærin.
Hvorki eru til viðurkennd bóluefni né önnur meðferð við þeim stofni ebólu sem nú geisar. Ghebreyesus heldur í dag til austurhluta Kongó þar sem faraldurinn á uppruna sinn.
Þar hafa stjórnarherinn og M23 uppreisnarsveitirnar borist á banaspjótum og Ghebreyesus hefur brýnt hvora tveggju til að leggja niður vopn til að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu ebólu.
Sjúkdómurinn hefur orðið yfir 15 þúsund manns að bana í Afríku undanfarna hálfa öld. Versti faraldurinn í Kongó kostaði líf 2300 af þeim 3500 sem vitað er að sýktust á árunum 2018-2020.