„Við erum að gera töluverðar breytingar í stjórnendalaginu, við vorum með ansi mikið af stjórnendum og erum að minnka það með þessum breytingum núna,“ segir Jón Guðni Ómarsson bankastjóri Íslandsbanka.
Tuttugu starfsmönnum bankans var sagt upp í dag til viðbótar við þrjátíu manns sem láta af störfum á árinu, meðal annars vegna aldurs. Stjórnendum verður fækkað um 15% og forstöðumönnum um 20%. Gert er ráð fyrir að frá næsta ári spari þetta milljarð króna við árlegan launakostnað.
Sparnaðurinn á meðal annars að fjármagna stafræna þróun og aukna nýtingu gervigreindar. Jón Gunnar segir hana ekki ganga í störf þeirra sem hefur verið sagt upp.
„Ég myndi ekki segja að hún gangi í störfin en hún klárlega hjálpar þeim sem eftir eru að verða enn þá skilvirkari í sínum störfum.“