Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, gleðst yfir því að stjórnmál á Íslandi verði ekki leiðinleg næstu árin með því að vera undirlögð af viðræðum við Evrópusambandið.
Hann segir niðurstöðuna vera áfall fyrir ríkisstjórnina.
„Ekki hægt að kalla það annað,“ segir hann.
Hann segir atkvæðagreiðsluna hafa snúist um sérhagsmuni Viðreisnar.
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra og formaður Flokks fólksins, segir ríkisstjórnina hafa brotið blað með þjóðaratkvæðagreiðslunni.
Þjóðaratkvæðagreiðslan hafi verið skýr og þjóðinni var gefið vald.
„Ég vona að þetta sé fordæmisgefandi fyrir það sem koma skal,“ segir Inga og bætir við að það eigi að treysta þjóðinni til að taka ákvarðanir um stór mál.
Lilja D. Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins, segir kosningarnar hafa verið kosningar unga fólksins.
Hún segir það hafa verið fallegt að fylgjast með umræðum meðal yngri kynslóða sem hafa farið á dýptina varðandi stefnu Evrópusambandsins og hvar það er statt.
Hún telur niðurstöðurnar sýna það að það þurfi að treysta böndin bæði til austurs og vesturs.
Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, segir ljóst miðað við kosningaþátttöku að þjóðin vildi segja sína skoðun á málinu.
Hún segir að átök um Evrópusambandið hafi litað stjórnmálaumræðu undanfarin ár og það hafi verið gott skref að leyfa þjóðinni að segja sína skoðun.
Umræðan muni sennilega hjaðna núna eftir þessar niðurstöður.
Hún gleðst yfir kosningaþátttökunni.
„Þetta er til fyrirmyndar að fólk hafi nýtt kosningarétt sinn.“
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir ljóst að ríkisstjórnin þurfi að virða niðurstöðu þjóðarinnar og draga aðildarumsóknina til baka.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, vildi aðra niðurstöðu en þá sem kom upp úr kjörkössunum.
Hún segist stolt af því að tilheyra ríkisstjórn sem setti það í stjórnarsáttmála að leyfa þjóðinni að greiða atkvæði um áframhald aðildarviðræðna.
Þau eru sest.
Bergsteinn Sigurðsson stýrir þætti kvöldsins, sem hefst innan skamms.
Þjóðin sagði nei við því að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Mjótt var á munum milli fylkinga en að lokum sögðu 52,8% landsmanna nei.
Kjörsókn var 82,5%.
Formenn þeirra stjórnmálaflokka sem eiga sæti á Alþingi eru gestir Silfursins strax að loknum fréttum í kvöld.
Þau Kristrún Frostadóttir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Inga Sæland, Guðrún Hafsteinsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Lilja Alfreðsdóttir ræða niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar.