Gamaldags en notalegt hús í Mosfellsbæ til sölu

Einbýlishús við Barrholt 31 í Mosfellsbæ hefur verið sett á sölu með ásett verð upp á 139,9 milljónir króna. Húsið var byggt árið 1978 og er staðsett á rólegum stað í grónu hverfi.
Húsið skiptist í stofu og borðstofu, eldhús, þvottahús, fjögur til fimm svefnherbergi, tvö baðherbergi og rúmgóðan tvöfaldan bílskúr. Þá fylgir eigninni stór og fallegur garður með hellulagðri verönd.
Við inngang tekur á móti flísalagt anddyri með fatahengi og þaðan er hægt að ganga bæði inn í þvottahús og eldhús. Eldhúsið er bjart með upprunalegri viðarinnréttingu, hvítri borðplötu og útsýni til Esjunnar. Þvottahúsið er innangengt bæði frá anddyri og eldhúsi og býður upp á gott vinnupláss.
Stofa og borðstofa eru rúmgóð rými með arni sem myndar miðpunkt rýmisins. Parket er á gólfum og útgengt er út í garðinn frá stofu. Hjónaherbergið er staðsett innst á svefnherbergisganginum og er með stórum fataskáp og útgengi út í garð. Tvö minni svefnherbergi eru með parketi á gólfum en stærsta herbergið við forstofu var áður tvö herbergi sem sameinuð voru í eitt.
Aðalbaðherbergið var endurnýjað árið 2007 og er búið viðarinnréttingu, tveimur vöskum, baðkari, sér sturtu og upphengdu salerni. Gestasalerni er við anddyri.
Tvöfaldur bílskúrinn er rúmgóður og búið er að stúka af sér rými innan hans. Fram kemur í sölugögnum að leki sé í þaki bílskúrsins. Þá eru næg bílastæði við húsið.
Samkvæmt upplýsingum seljanda hefur húsið fengið gott viðhald í gegnum árin, einkum að utan, þar sem bæði múr og þak hafa verið endurnýjuð eða lagfærð