Taugatitringurinn í Svíþjóð vegna þing- og sveitarstjórnarkosninganna á sunnudag tekur á sig ýmsar myndir en mjótt er á mununum á milli fylkinga á þingi og því alls óvíst hvort hægri flokkarnir haldi völdum, vinstri flokkarnir taki við eða að mynduð verði stjórn þvert yfir miðjuna. Nýjasta uppákoman sem valdið hefur deilum milli flokkanna er stórt auglýsingaskilti sem hengt var upp á vegg en á því er mynd tekinn var af leiðtoga stærsta stjórnarandstöðuflokksins í þingsal, án vitundar hennar og birt á Instagram-síðu forsætisráðherra.
Gagnrýnt að laumumynd forsætisráðherrans sé notuð á kosningaskilti