Tjörvi Týr Gíslason og liðsfélagar hans í Oppenweiler unnu sinn fyrsta leik í þýsku B-deildinni í handbolta í dag þegar liðið tók á móti Ludwigshafen í næstsíðustu umferð deildarinnar.
Leiknum lauk með fjögurra marka sigri Oppenweiler, 33:29, en Tjörvi Týr skoraði eitt mark í leiknum úr þremur skotum.
Oppenweiler er með 4 stig í átjánda og neðsta sætinu og löngu fallið í þýsku C-deildinni en Krefeld, sem er með 18 stig í sautjánda sætinu, er einnig fallið eftir úrslit dagsins.