Ann Widdecombe, breskur stjórnmálamaður og sjónvarpsstjarna, fannst látin á heimili sínu með alvarlega áverka á fimmtudag, 78 ára að aldri.
Lögregla rannsakar dauða hennar sem morð. 26 ára Breti sem hefur verið í gæsluvarðhaldi var látinn laus í dag. Lögregla segir hann ekki lengur til rannsóknar en segir rannsókninni „miða vel áfram“.
Ekki rannsakað sem hryðjuverk
Andlát hennar var tilkynnt í gærmorgun og síðdegis í gær tilkynnti lögreglan í Devon og Cornwall að morðrannsókn væri hafin og birti upplýsingar um grunaðan einstakling. Samkvæmt lögreglu er ekkert sem bendir til þess að glæpurinn hafi verið pólitískur. Málið er ekki rannsakað sem hryðjuverk.
Töluverður lögregluviðbúnaður er við hús Widdecombe í Dartmoor í Devon samkvæmt frétt breska ríkisútvarpsins, nokkrir lögreglubílar á veginum og í innkeyrslunni.
Nágranni Widdecombe segir svæðið vera mjög öruggt. Hún segir ekki óalgengt að heimamenn skilji bíla sína og útidyr eftir ólæstar.
Dansari, þáttastjórnandi og leikari
Ann Widdecombe var atvinnumálaráðherra og fangelsismálaráðherra fyrir Íhaldsflokkinn en gekk svo til liðs við Brexit-flokkinn sem síðar varð Umbótaflokkurinn. Hún sat á þingi til ársins 2010 og á Evrópuþingi þar til Bretar gengu úr Evrópusambandinu árið 2020.
Eftir þingsetuna gerðist Widdecombe sjónvarpsstjarna; hún keppti í Allir geta dansað (e. Strictly come dancing) og Celebrity Big Brother, var gestaþáttastjórnandi í spurningaþætti og kom fram í þætti af Doctor Who.