Þetta kom fram í máli hans á ráðstefnu í Ísrael í gær þar sem hann sagðist hafa skipað hernum að stækka yfirráðasvæðið jafnt og þétt og nú væri komið að því að taka tíu prósent í viðbót og fara í sjötíu prósent. Þetta þýðir að Ísraelar hafa gerst brotlegir við vopnahléssamningana sem Donald Trump hafði milligöngu um í október en þar var kveðið á um að Ísraelar myndu stjórna 53 prósentum af svæðinu og Palestínumenn restinni. Ísraelar hafa margsinnis gert árásir á Gasa svæðið frá því vopnahléinu var komið á og samkvæmt breska ríkisútvarpinu hafa um 738 Palestínumenn fallið í þeim árásum.
Hvorki hefur gengið né rekið í samningaviðræðum milli Hamas-samtakanna og Ísrael en samkvæmt vopnahlésskilmálunum áttu Ísraelar að eftirláta Hamas sífellt meira af Gasa um leið og Hamas samtökin myndu afvopnast. Þess í stað segist Netanjahú ætla að kreista Hamasliða enn frekar og varnarmálaráðherran Israel Katz lét hafa eftir sér í vikunni að markmiðið væri að drepa alla þá sem komu að árásunum á Ísrael árið 2023 og að Hamas samtökin muni aldrei fá að stjórna Gasa á ný.
Aðrir ráðherrar í Ísrael á borð við Ben-Gvir og Smotrich hafa síðan opinberlega talað um áætlanir sem miða að því að koma öllum Palestínumönnum á brott frá Gasa svæðinu og endurbyggja það með Ísraelskum landnemum.