Þetta segir Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, við Morgunblaðið.
Greint var frá því í Morgunblaðinu í gær að lögreglustjórinn á Suðurlandi hefði á seinasta ári keypt úlpur fyrir lögreglumenn í gegnum markaðstorg AliExpress, sem er í eigu hins kínverska Alibaba.
Í svörum embættisins við fyrirspurn blaðsins sagði að úlpur hefðu ekki fengist hjá hefðbundnum birgi embættisins.
Eins fatnaður almenn stefna
Fjölnir segir það almenna stefnu Landssambandsins að öll lögregluembætti kaupi inn eins einkennisfatnað sem standist gæðakröfur.
Spurður hvort honum þyki eðlilegt að lögreglan versli af síðum eins og AliExpress svarar hann því neitandi.
„Mér finnst það bara mjög skrýtið. Ég get alveg skilið að þeir vilji spara peninga, en já, mér finnst bara mjög skrýtið að gera þetta.“
Bendir hann á að ríkislögreglustjóri gefi út reglur um mál sem þessi.
Ríkislögreglustjóri óupplýstur
Í umfjöllun Morgunblaðsins í gær var greint frá því að í svari embættis ríkislögreglustjóra um málið hefði komið fram að hvert lögregluembætti væri sjálfstætt í ákvörðunum um kaup á vörum og þjónustu og að embætti ríkislögreglustjóra hefði ekki verið upplýst um umrædd kaup.
Í reglugerð um einkennisfatnað lögreglunnar segir í annarri málsgrein annarrar greinar að með einkennisfatnaði lögreglu sé átt við þann fatnað sem ríkislögreglustjóri hefur samþykkt til notkunar hjá lögreglu.
Í tíundu grein sömu reglugerðar kemur skýrlega fram að ekki sé heimilt að nota annan fatnað eða búnað en þann sem ríkislögreglustjóri hefur samþykkt til notkunar.
Ekki merkt framleiðanda
Grímur Hergeirsson, lögreglustjórinn á Suðurlandi, sagði úlpurnar ekki hafa verið merktar sérstökum framleiðanda og liggur því ekki fyrir hver framleiðandi úlpnanna er.
Nú sé þó á áætlun að skipta út úlpunum fyrir aðrar betri enda hafi ráðstöfunin einungis verið hugsuð til að leysa tímabundinn skort á fatnaði.
Telja bæði embættin að farið hafi verið eftir gildandi reglum um opinber innkaup þar sem fjárhæð kaupanna hafi verið langt undir útboðsmörkum og engir samningar í gildi á þeim tíma, en netverslanir sem þessar eru einmitt þekktar fyrir lágt verð og lítil gæði.
Ríkislögreglustjóri kvaðst vita af kaupum á nokkrum úlpum hjá einu lögregluembætti síðasta vetur þegar enginn samningur var í gildi og úlpurnar ekki til hjá viðurkenndum umboðsaðila.
Fatnaður skuli standast kröfur
Voru úlpurnar lagervara hjá söluaðila og ekki framleiddar sérstaklega fyrir lögreglu.
Sigurður Ingi Eiríksson, framkvæmdastjóri verslunarinnar Hiss, sem selur meðal annars búnað fyrir viðbragðsaðila og lögreglan hefur átt í viðskiptum við, staðfesti við Morgunblaðið að úlpurnar hefðu ekki verið til á lager úti á þeim tíma sem lögreglustjórinn á Suðurlandi festi kaup á AliExpress-úlpunum.
„Það getur vel verið að einhverjir samningar séu runnir út, ég þekki það ekki, en það er stefnan að bæði skófatnaður og annað standist ákveðnar kröfur,“ segir Fjölnir.
Aðspurður segist hann ekki kannast við önnur mál sem þetta.
„Nei, þetta er bara alveg nýtt fyrir mér. Ég hélt að það væri bara verslað við einhverja viðurkennda aðila.“